Þá er öllum fimm leikjum kvöldsins lokið. Það var hörku fjör í kvöld þar sem að tveir leikir fóru í framlengingu og annar af þeim meira að segja í tvær framlengingar og síðan var næstum því framlengt í þeim þriðja.
Eftir að hafa verið undir allan leikinn komu Haukar með sterkan kafla þar sem þeim tókst að fá leikinn í framlengingu en Skallagrímur sagði stopp þar og voru sterkari í framlengingunni. Þór Þorlákshöfn fóru illa að ráði sínu eftir að hafa verið betri aðilinn allt fram að loka mínútunum þar sem að Grindavík sýndu að það er engin tilviljun að þeir séu núverandi bikarmeistarar og Íslandsmeistarar seinustu tveggja ára þegar þeir kláruðu Þórsara 14-0. Keflavík tókst að klára ÍR í ansi hreint mögnuðum tvíframlengdum spennuslag. Elvar Már tryggði Njarðvík sigurinn á Snæfellingum með sigurkörfu þegar aðeins tvær sekúndur voru til leiksloka. KR fagnaði deildarmeistaratitlinum í bragðdaufum leik þrátt fyrir að hafa farið yfir 100 stig.
Úrvalsdeild:
SKALLAGRÍMUR: Benjamin Curtis Smith 52/10 fráköst/8 stoðsendingar, Grétar Ingi Erlendsson 16/8 fráköst, Egill Egilsson 12/10 fráköst/5 stoðsendingar, Páll Axel Vilbergsson 9/6 fráköst, Ármann Örn Vilbergsson 5, Trausti Eiríksson 3/8 fráköst, Atli Aðalsteinsson 2, Davíð Ásgeirsson 0, Orri Jónsson 0, Sigurður Þórarinsson 0
HAUKAR: Terrence Watson 24/9 fráköst/3 varin, Davíð Páll Hermannsson 21/6 fráköst, Sigurður Þór Einarsson 12, Haukur Óskarsson 11, Emil Barja 10/12 fráköst/6 stoðsendingar, Svavar Páll Pálsson 6, Kári Jónsson 4, Þorsteinn Finnbogason 2, Kristinn Marinósson 0
ÞÓR Þ.: Mike Cook Jr. 23/5 stoðsendingar, Nemanja Sovic 18/10 fráköst, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 17/12 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 11/3 varin skot, Emil Karel Einarsson 9, Halldór Garðar Hermannsson 6, Baldur Þór Ragnarsson 4/4 stoðsendingar
GRINDAVÍK: Sigurður Gunnar Þorsteinsson 25/13 fráköst, Jóhann Árni Ólafsson 20/5 stoðsendingar, Ómar Örn Sævarsson 14/10 fráköst, Ólafur Ólafsson 14/7 stoðsendingar, Jón Axel Guðmundsson 8, Daníel Guðni Guðmundsson 7, Earnest Lewis Clinch Jr. 7, Hilmir Kristjánsson 2, Kjartan Helgi Steinþórsson 0
KEFLAVÍK: Michael Craion 42/16 fráköst/5 stolnir, Darrel Keith Lewis 31/7 fráköst/6 stoðsendingar/6 stolnir, Guðmundur Jónsson 24/6 fráköst, Þröstur Leó Jóhannsson 12/9 fráköst, Valur Orri Valsson 12/5 fráköst/6 stoðsendingar, Arnar Freyr Jónsson 5, Gunnar Ólafsson 0
ÍR: Nigel Moore 32/14 fráköst/6 stoðsendingar, Ragnar Örn Bragason 23, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 21, Sveinbjörn Claessen 20, Matthías Orri Sigurðarson 14/6 fráköst/11 stoðsendingar, Hjalti Friðriksson 10, Vilhjálmur Theodór Jónsson 3
NJARÐVÍK: Tracy Smith Jr. 26/11 fráköst, Logi Gunnarsson 21/7 fráköst/6 stoðsendingar, Elvar Már Friðriksson 19/5 stoðsendingar/5 stolnir, Ólafur Helgi Jónsson 12/7 fráköst, Hjörtur Hrafn Einarsson 4/6 fráköst, Ágúst Orrason 1, Macei Stanislav Baginski 0
SNÆFELL: Travis Cohn III 24/7 fráköst/6 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 18/9 fráköst, Finnur Atli Magnússon 9/5 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 8/6 fráköst, Stefán Karel Torfason 8, Kristján Pétur Andrésson 5, Sigurður Á. Þorvaldsson 4/6 fráköst, Þorbergur Helgi Sæþórsson 3, Snjólfur Björnsson 2, Sveinn Arnar Davíðsson 0
KR: Martin Hermannsson 20/11 stoðsendingar, Demond Watt Jr. 14/19 fráköst, Darri Hilmarsson 14, Pavel Ermolinskij 13/8 fráköst/8 stoðsendingar, Ólafur Már Ægisson 13, Brynjar Þór Björnsson 12, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 8/6 fráköst, Illugi Steingrímsson 4, Vilhjálmur Kári Jensson 3, Friðrik Þjálfi Stefánsson 0, Kormákur Arthursson 0, Högni Fjalarsson 0
VALUR: Chris Woods 33/12 fráköst, Benedikt Blöndal 13, Rúnar Ingi Erlingsson 13, Birgir Björn Pétursson 8/5 fráköst, Oddur Ólafsson 7/8 stoðsendingar, Guðni Heiðar Valentínusson 2, Kristinn Ólafsson 2, Þorri Arnarson 0, Jens Guðmundsson 0, Benedikt Smári Skúlason 0, Oddur Birnir Pétursson 0/5 fráköst, Hlynur Logi Víkingsson
Mynd/ Axel Finnur – Bæði Haukar og Þór Þorlákshöfn töpuðu sínum leik í kvöld




