HomeFréttirLeikir kvöldsins: Úrslitakeppnin komin á flug

Leikir kvöldsins: Úrslitakeppnin komin á flug

Þá er komið að leikjum númer tvö í 4-liða úrslitum kvenna. Keflavík fær Hauka í heimsókn og Valur tekur á móti Snæfellingum.
Keflavík voru ekki að spila sérstaklega vel í fyrsta leiknum en meiri líkur en minni á því að þær sýni sitt rétta andlit á heimavelli í kvöld. Snæfell fékk ekki góðar fréttir í vikunni þar sem þær misstu Hugrúnu Evu Valdimarsdóttur og Chynna Unique Brown í meiðsli og því kjörið tækifæri fyrir Val að jafna einvígið.
Báðar viðureignir hefjast klukkan 19:15
 
Fréttir
- Auglýsing -