Helgi Már Magnússon er einn af nokkrum lykilmönnum KR sem eru á svakalegri siglingu þessa dagana og senda skýr skilaboð til annara liða í deildinni með því að sópa út sterku liði Snæfells. KR skoraði 101 stig í kvöld en Helgi skoraði þar af 17 stig og setti nokkra stóra þrista.
Hafðiru hugsað þér fyrir þessa seríu að þið gætuð sópað Snæfell út?
“Ég var svona á báðum áttum, þetta réðst dálítið af fyrst aleiknum fannst mér. Þá fann maður hvenrig þetta einvígi lág. En hólmarar eru með það gott lið, Nonni mæju getur átt 30-40 stiga leik, Siggi er búinn að vera góður, Finnur, þeir eru með fjóra fyrrverandi landsliðsmenn og góðan kana. Maður veit aldrei með svona lið og maður verður að vera á tánum. Mér fannst við framkvæma þetta nokkuð professional í kvöld”.
Er KR ekki að senda mjög skýr skilaboð, er einhver að fara að vinna KR ?
“Vonandi ekki, við stefnum á að vinna alla leiki og við skulum vona að enginn vinni okkur”.
Einhver óskamóterji í næstu umferð?
“Nei nei, ekkert frekar. Við getum fengið þarna þrjú lið, Stjörnuna, Þór eða Njarðvík ef ég man þetta rétt. Eigum við ekki bara að leyfa þessu spilast, sjá hvernig fer. Ég er ekki búinn að horfa á nógu mikið af þessu. Ég sá Stjörnuna um daginn og þeir litu vel út. Ég er ekki búinn að pæla svo langt”.
Mynd úr safni :JBÓ




