HomeFréttirMarsfárið í fullum gangi

Marsfárið í fullum gangi

 Marsfárið eða March Madness eins og kaninn kallar það stendur sem hæst þessa dagana.  Keppnin er þekkt fyrir skemmtileg öskubuskuævintýri og er árið í ár engin undantekning þar á.  Liðin átta sem hafa tryggt sér sæti í 8 liða úrslitum eða “elite eight”   eru  Dayton(11), Florida(1), Arizona(1) og Wisconsin(2) öðru megin og Michigan State(4), Connecticut(7), Kentucky(8) og Michigan (2. )Liðinum er raða upp eftir styrkleika fyrir keppnina og sést á þessum liðum að Dayton er öskubuskuævintýri keppninnar í ár.   Dayton fór ekki auðveldu leiðina í átta liða úrslit heldur hafa unnið Ohio State, Syracuse og Stanford.  
Fyrsti sigur þeirra íi keppninni í ár var ekki ókeypis en hann var gegn Ohio State í fyrstu umferð þar sem þeir komast yfir með 3,8 sekúndur eftir á klukkunni.  Ohio bruna fram og ná erfiðu skoti sem rúllar af hringnum og fögnuður Dayton manna er ósvikinn.  Næsti sigur var gegn Syracuse sem fyrir voru metnir þriðja besta liðið í sínum riðli.  Þar á eftir bundu þeir enda á annað öskubusku ævintýri Stanford sem fyrifram voru metnir álíka ólíklegir til afreka og Dayton.
Næsta verkefni þeirra verður svo risavaxið þegar þeir mæta Florida sem fyrirfram er eitt af þeim liðum sem margir spá að gæti unnið keppnina í ár.
 
 
Átta liða úrslitin fara svo fram í kvöld og á morgun.  Hérna fyrir neðan má sjá skemmtilegt myndband um leik Dayton og Ohio State sem sýnir vel tilfinningarnar og spennuna sem myndast í kringum þessa stórkostlegu keppni sem Marsfárið er.  
 
Fréttir
- Auglýsing -