HomeFréttirFinal Four á laugardaginn

Final Four á laugardaginn

Í gær varð ljóst hvaða fjögur lið keppa í Final FOur í háskólaboltanum í bandaríkjunum eða hin fjögur fræknu eins og það hefur oft verið nefnt.  Tvö lið hafa komið nokkuð á óvart en það eru Kentucky Wildcats og Conneticut Huskies slóu út Michigan skólana tvo, Michigan Wolverines og Michigan State Spartans.  Kentucky unnu þriggja stiga sigur á Michigan Wolverines, 75-72 og Conneticut unnu Michigan State Spartans með 6 stigum, 60-54.  
Sigur Kentucky á Michigan Wolverines var svo sannarlega eitthvað fyrir augan og vannst leikurinn á þrist frá Aaron Harrison með 2,3 sekúndur eftir af leiknum.  Hérna fyrir neðan má sjá myndband af skotinu stóra en beðist er velvirðingar á lélegu myndbandi.  Skotið er þrátt fyrir það alveg jafn magnað. 
 
Það er því ljóst að Florida mætir Conneticut og Kentucky Wildcats mæta Wisconsin  en báðir leikirnir fara fram á laugardaginn næstkomandi, 5. apríl.  
 
 
Fréttir
- Auglýsing -