HomeFréttirBein textalýsing: Ísland-Finnland U18 kvenna

Bein textalýsing: Ísland-Finnland U18 kvenna

 Hérna fylgir textalýsing af leik Íslands og Finnlands í Undir 18 ára kvenna.  Íslenska liðið hefur unnið einn leik og tapað einum.  Það reynir á þær í dag þar sem Finnsku stelpurnar hafa ekki tapað leik hingað til á mótinu.  
 
 
Árni Hilmarsson aðstoðarþjálfari í viðtali eftir leik:

Fjórði leikhluti

 
– Leik lokið – Finnar vinna nokkuð stóran sigur, 78-57.  
 
– 57-75 Margrét Ósk skilar boltanum ofaní eftir laglega sendingu frá Söru. 
 
– 55-69  Guðlaug fer aftur á línuna, brotið á henni þegar hún er að bera upp boltan.  Hún nýtir bæði vítin
 
– 53-68 Guðlaug er send á línuna strax eftir, brotið á henni við að ná frákasti í vítaskoti Söru.  Guðlaug nýtir bæði vítin.
 
– 51-68 Sara er send á línuna, en Ísland er komið í bónus.  Hún nýtir annað.
 
– 50-68 Elsa kemur sterk inn af bekknum fyrir Söndru og skorar strax í næstu sókn, vel gert 
 
– 48-66 Sandra fær sína fimmtu villu, hún hefur lokið leik í dag 
 
– 46-64 Leikhlé Ísland – Sex mínútur eftir

– 46-64 Átta stig í röð frá þeim Finnsku, þetta fer að verða erfitt. 
 
 
 
 
– 46-62 Leikhlé Finnland 
 
– 46- 62 Finnar byrja fjórða leikhluta mjög vel, setja fyrstu fimm stigin og gera brekkuna fyrir íslenska liðið örlítið brattari
 
 
 
Þriðji leikhluti:
 
– 46-57 Óheppni, Finnar skora úr seinasta skoti leikhlutans, boltinn skoppar af hringnum, hátt uppí loftið og svo ofaní 
 
– 46-55 Glæsileg sókn hjá Íslenska liðinu, þær létu boltan ganga vel á milli sín sem endaði með sniðskoti hjá Söru. Hún fékk vítið að auki en tókst ekki að nýta vítið. 
 
– 42-55 Sara Rún setur tvö víti niður 
 
– 40-55 – Finnar splæsa í þrist og Ísland tekur leikhlé 
 
– 40-52 Finnum gengur betur að finna leiðina að körfunni.  Íslenskar tilraunir eru of þvingaðar.  Stelpurnar eru að taka mun fleiri fráköst en Finnar en það dugar ekki til.  
 
– 40-49 Aftur er það Guðlaug sem skorar, stoppar snöggt við vítalínu og tekur skotið óáreitt.  Vel gert
 
– 38-46 Guðlaug setur niður 2 stig
 
– 36-46 Ísland tekur leikhlé
 
– 36-44 Ísland er að frákasta vel, en sóknarleikurinn gengur illa.  Þrjár tilraunir forgörðum í sömu sókninni, 
 
– 36-39 Sara Rún skellir niður þrist fyrir Ísland, fyrsti þristur Íslands í leiknum (1-4).

– 33-37 Eva Margrét gerir fyrstu stig Íslands í síðari háflleik af vítalínunni.

– Finnar byrja með boltann.

Hálfleikur: Ísland 31-37 Finnland

Sandra Lind Þrastardóttir 11 stig / 8 fráköst
Sara Rún Hinriksdóttir 8 stig / 3 fráköst
Guðlaug Björt Júlíusdóttir 3 stig / 9 fráköst 
 
Annar leikhluti 
 
Guðlaug Björt sækir að finnsku vörninni í öðrum leikhluta

– Hálfleikur
 
– 31-37 Finnar með beittan þrist þegar 25sek eru til hálfleiks…staðan 31-37 fyrir Finna nú þegar komið er leikhlé.

– 31-34 Eva Margrét með flottan snúning í finnska teignum og skorar úr stökkskoti, lagleg hreyfing hjá Ísafjarðardömunni.

– 29-34 Guðlaug setur niður bæði vítin og minnkar muninn í 5 stig, Ísland þarf að þétta raðirnar í vörninni hér á síðustu augnablikum fyrri hálfleiks.

– 27-34 og 1.30mín eftir af fyrri hálfleik, Guðlaug Björt á leið á vítalínuna.

– 24-28 fyrir Finna, 2.57mín til hálfleiks. Hér lá Guðbjörg Ósk Einarsdóttir eftir í gólfinu og hélt um höfuð sér, þetta var ekki alvarlegt en dómarar leiksins voru ekki með á nótunum og létu leikinn halda áfram, báru því fyrir sig að hafa ekki séð að aðeins fjórir íslenskir varnarmenn hefðu verið í vörn í 7-10 sekúndur, japl, jaml og fuður það!

– 4.47mín til hálfleiks, Sara og Sandra leiða íslenska liðið báðar með 8 stig.

– Forskot Finna stendur í fimm stigum þegar annar leikhluti er hálfnaður, 28-23.  

 
– Sjö stig í röð frá þeim finnsku, þær pressa boltan sem hefur skilað þeim nokkrum auðveldum stigum, 26-19. 
 
– Annar leikhluti fer rólega af stað, báðum liðum gengur illa að koma boltanum ofaní, 19-19 eftir tvær mínútur.  
 
– Sandra, Elsa, Bríet, Sandra og Þóra Kristín byrja annan leikhluta 
 
 
 
 
Fyrsti leikhluti 
 
– Finnar leiða 19-17 þegar flautað er til loka fyrsta leikhluta.  
 
– 17-17 og ein mínúta eftir af fyrsta leikhluta.  
 
– Sara Rún kemur íslandi yfir af vítalínunni, 15-16 
 
– Elsa kemur sterk inn, í þetta skiptið eftir sendingu frá Söndru, 15-14.  
 
– Elsa skorar úr hraðaupphlaupi eftir glæsilega sendingu frá Guðlaugu, 13-12.  
 
– Sóknarfráköstin eru að detta okkar megin, þrjú sóknarfráköst í sömu sókninni og stelpurnar leita að jöfnunarstiginu
 
– Íslenska liðið hefur náð að loka í vörninni og núna munar aðeins tveimur stigum á liðunum, 10-8 
 
– Sara Rún svarar fyrir Ísland, hún hefur skorað öll fjögur stig Íslands til þessa, 10-4 
 
– Þær Finnsku hafa stolið boltanum í tvígangn núna og refsa með næstu fimm stigum.  Varnarleikurinn þeirra er að ganga fullkomnlega upp í upphafi, 10-2. 
 
– Finnska liðið byrjar betur og leiðir 5-2 eftir tvær mínútur  
 
– Byrjunarlið Íslands er :Sandra lind, Sara Rún, Guðalug Björt, Bríet Sif og Eva.  
Fréttir
- Auglýsing -