HomeFréttirÞriðji þáttur af Iðnaðartroð

Þriðji þáttur af Iðnaðartroð

 Þriðji þátturinn af körfubolta hlaðvarpinu Iðnaðartroð í umsjón Magnús Björgvins Guðmundssonar og Gísla Ólafssonar er kominn í loftið en gestur þáttarins að þessu sinni er Björn Atli Davíðsson.  Umræðuefni þáttarins að þessu sinni er austurdeild NBA deildarinnar og þær breytingar sem hafa átt sér stað þar uppá síðkastið og Los Angeles Lakers og þá einkennilegu stefnu sem liðið hefur tekið í leikmannamálum.  
 
Formleg spurning þáttarins er hvert er flottasta logo í NBA deildinni allra tíma og hvetjum við sem flesta til þess að taka þátt í umræðunni á twitter og hashtagga það með #iðnaðartroð. Björn Atli lagði svo óformlega spurningu fyrir þáttinn undir lokin sem við hvetjum sem flesta til þess að hugleiða og ræða á twitter líka.  

Þátturinn er hérna fyrir neðan og hægt er að downloada honum fyrir þá sem hafa áhuga.  

 
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -