HomeFréttirStærsti leikur sögunnar!

Stærsti leikur sögunnar!

 Í kvöld kl. 18:35 mætir Ísland Stóra Bretlandi í einum stærsta leik íslenskrar íþróttasögu í beinni útsendingu á íþróttarás RÚV. Í kvöld eru raunverulegir möguleikar á því að A-landslið karla í körfubolta vinni sér sæti á stórmóti í næst stærstu boltaíþrótt heimsins.
 Logi Gunnarsson lýsti því fyrir fréttaritara karfan.is að leikurinn væri sá stærsti á ferlinum, en eins og flestir sem til þekkja vita á Logi langan og farsælan feril að baki sem atvinnumaður. Leikurinn er það stór að Jón Arnór, sem vegna tryggingamála sá sig knúinn til að draga sig út úr landsliðshópnum ákvað, eftir samráð við fjölskyldu sína að mæta aftur til leiks þrátt fyrir að vera ótryggður.

Í stuttu máli sagt, þá getur Ísland tryggt sér sæti á lokakeppni EM 2015 með sigri. Möguleikar sem þessir hafa verið svo fjarlægir að íslenskir körfuboltaunnendur hafa ekki einu gerst sekir um að ræða þá, stórmót er jafn fjarlægur möguleiki fyrir flesta íslenska körfuboltamenn og dagsferð til tunglsins. Nú grillir hins vegar í “dagsferðina til tunglsins”, möguleikarnir eru í okkar höndum. Við hvetjum alla til að senda landsliðinu góðar kveðjur á samfélagsmiðlum og látið hashtagið #korfubolti eða #körfubolti fylgja með.

Áfram Ísland!

Fréttir
- Auglýsing -