Heimsmeistarakeppnin hefst á morgun á Spáni, en fyrstu leikirnir eru þá kl. 10:30 að íslenskum tíma. Það eru Króatía-Filippseyjar, Úkraína-Dóminíska Lýðveldið og Angóla-Suður Kórea sem ríða á vaðið.
Hægt verður að fylgjast með öllum leikjum mótsins í beinni í gegnum netið fyrir litla $5.99. KKÍ fær ágóða af hverri áskrift sem keypt er með því að fara inn á kki.is og smella þar á hlekkinn, og þar gefst íslenskum körfuhundum frábært tækifæri til að styrkja starf sambandsins og festa sér áskrift að öllum leikjum HM á sama tíma. Hægt er að lesa sér nánar til um þetta á heimasíðu KKÍ.




