Haukar fengu Hamar í heimsókn í kvöld í 4. umferð Dominosdeildar kvenna þar sem Haukar sigruðu 69-53. Hamar spiluðu mjög vel í fyrsta leikhluta en eftir því sem leið á leikinn urðu þær þreyttari og þreyttari. Haukar með miklu meiri breidd og því auðvelt fyrir þær að ganga á lagið og brjóta Hamar niður hægt og rólega.
Lele Hardy endaði leikinn með 29 stig, 13 fráköst, 7 stolna bolta og 5 stoðsendingar og það eftir að hafa verið aðeins með 4 stig í fyrri hálfleik.
Liðin byrjuðu á að skiptast á körfum og voru Dagbjört Samúelsdóttir og Andrina Rendon heitar og skorðu þær fyrstu stig sinna liða 5-6. Eftir það fóru Hamarsstúlkur að síga framm úr. En þær spiluðu einstaklega vel saman þar sem hreyfinging án bolta var mjög góð ásamt því að þær spiluðu boltanum vel sín á milli. Haukar gátu ekki ákveðið sig hvort þær ætluðu að loka miðjunni eða stoppa þriggjastigaskotin því Hamar fengu annað hvort galopna þrista, sem þær nýttu einstaklega vel þar sem þær settu niður fimm fyrstu skotin, eða opna miðju að körfunni.
Á þessari spilamennsku komust Hamar í 7-18. Þá var Ívari Ásgrímssyni öllum lokið og skipti hann ungu stúlkunum Sylvíu Rún Hálfdanardóttur, Ingu Rún Svansdóttur og Þóru Kristínu Jónsdóttur inn á til að hrista upp í leik sinna kvenna. Það var einmitt það sem þurfti og komu Haukar í gang og enduðu leikhluta á 11-5 áhlaupi og staðan því 18-23 að loknum fyrsta leikhluta.
Á þessari spilamennsku komust Hamar í 7-18. Þá var Ívari Ásgrímssyni öllum lokið og skipti hann ungu stúlkunum Sylvíu Rún Hálfdanardóttur, Ingu Rún Svansdóttur og Þóru Kristínu Jónsdóttur inn á til að hrista upp í leik sinna kvenna. Það var einmitt það sem þurfti og komu Haukar í gang og enduðu leikhluta á 11-5 áhlaupi og staðan því 18-23 að loknum fyrsta leikhluta.
Eftir þennan enda sprett í fyrsta leikhluta voru Haukar komnar í takt við leikinn og var jafnt á meðal liðanna í upphafi annars leikhluta. Þó fór Rendon af stað og skoraði 5 stig á 7-0 kafla hjá Hamri sem kom þeim í 24-34.
Þá tók við slæmur kafli hjá báðum liðum þar sem ekkert gekk upp sóknarlega og liðu 6 mínútur og 10 sekúndur áður en hvorugu liðinu tækist að skora. Þrátt fyrir stigaleysið þá fráköstu Haukastúlkur gríðarlega vel og voru þær komnar með jafn mörg sóknarfráköst og Hamar með varnarfráköst í hálfleik. En áður en hálfleiksklukkan gall þá smellti Sólrún Inga Gísladóttir niður flottum flautu þrist úr horninu. Hamar leiddu þó 31-36 í hálfleik.
Haukar skoruðu fyrstu 5 stig þriðja leikhluta og jöfnuðu leikinn 36-36 eftir þrist frá Auði Írisi Ólafsdóttur. Eftir að hafa haft hljótt um sig í stigaskoruninni varð Hardy aðgangsharðari þar á bæ sem skilaði sér í glimmrandi sóknarleik hjá Haukum. Haukar unnu leikhlutann örugglega 18-8 þar sem Hardy fór fyrir liðinu með 11 stig, 4 fráköst og 4 stolna bolta.
Hardy hélt uppteknum hætti og skoraði 8 af 10 fyrstu stigum Hauka í fjórða leikhlutanum. Hamar voru alveg búnar á því og gekk ekkert upp hjá þeim. Haukar gengu á lagið og yfirspiluðu þær 18-2 á fyrstu fimm mínútum leikhlutans. Þá löguðu Hamarsstúlkur aðeins til í leik sýnum þar sem Salbjörg Ragna Sævarsdóttir var dugleg að koma sér á línuna og Þórunn Bjarnadóttir virtist vera sú eina sem átti eitthvað eftir á tanknum, sem var magnað í ljósi þess að hún spilaði hverja einustu sekúndu í leiknum, og skoruðu þær 7-0 áður en Inga Sif Sigfúsdóttir skoraði loka körfu leiksins þannig að leikar enduðu 69-53 heimaliðinu í vil.
Stigahæst hjá Haukum var Lele Hardy með 29 stig, 13 fráköst, 7 stolna bolta og 5 stoðsendingar. Næst komu Dagbjört Samúelsdóttir með 12 stig, Sylvía Rún Hálfdanardóttur með 6 stig og 12 fráköst (þar af 8 sóknarfráköst) og Þóra Kristín Jónsdóttir með 2 stig og 9 fráköst.
Stigahæst hjá Hamri var Andrina Rendon með 21 stig, 6 fráköst og 4 stolna bolta. Næstar henni voru Þórunn Bjarnadóttir með 10 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar og Salbjörg Ragna Sævarsdóttir með 9 stig og 8 fráköst.
Mynd/ Axel Finnur – Það er ekki margt sem stoppar Lele Hardy þegar hún sækir svona ákveðin að körfunni




