HomeFréttirNBA spá: suðvesturriðill

NBA spá: suðvesturriðill

 Karfan.is leitaði til sérfræðinga Facebook spjallhópsins NBA Spjallið – Where Amazing Happens og bað meðlimi hópsins að spá fyrir um komandi NBA tímabil.
 
Nú er komið að suðvesturriðlinum, riðli meistaranna í San Antonio Spurs. Þessi riðill er af mörgum talinn sá sterkasti í NBA um þessar mundir, en auk meistaranna er búist við því að Houston Rockets, Dallas Mavericks og Memphis Grizzlies komist í úrslitakeppnina, en að New Orleans Pelicans sitji eftir.
 
 
San Antonio Spurs: ein heitasta umræða síðsumarsins var hvaða lið hefði “unnið” leikmannamarkaðinn. Af einhverjum sökum var litið fram hjá því að meistarar Spurs héldu saman meistaraliðinu, sem að mati þessa skríbents verður að teljast merkilegra en allt annað sem gert var þetta sumarið. Spurs unnu sumarið og eru núna að eltast við repeat titil.
Leikmenn inn: Kyle Anderson (R). 
Leikmenn út: Damion James.
 
Houston Rockets: Rockets hefur tekist að vera eitt hataðasta góða lið deildarinnar eftir ummæli þeirra Dwight Howard og James Harden í sumar, þó margir vilji meina að þau hafi verið slitin úr samhengi eða misskilin. Hvað sem því líður, þá komast þeir í úrslitakeppnina.
Leikmenn inn: Trevor Ariza (WAS), Tarik Black (R), Clint Capela (R), Joey Dorsey, Nick Johnson (R), Kostas Papanikolaou (R), Jason Terry (SAC).
Leikmenn út: Omer Asik (NOP), Omri Casspi (SAC), Robert Covington, Jordan Hamilton (UTA), Jeremy Lin (LAL), Chandler Parsons (DAL), Josh Powell.
 
Dallas Mavericks: lið sem leitt er af öðlingnum Dirk Nowitzki er alltaf skeinuhætt. Þetta er liðið sem veitti meisturum Spurs hvað mesta keppni í úrslitakeppninni síðasta vor. Þeir hafa þó endurnýjað ansi stóran hluta leikmannahópsins, en aðeins sex leikmenn eru eftir frá síðustu leiktíð.
Leikmenn inn: Al-Farouq Aminu (NOP), José Juan Barea (MIN), Tyson Chandler (NYK), Raymond Felton (NYK), Richard Jefferson (UTA), Jameer Nelson (ORL), Chandler Parsons (HOU), Greg Smith (CHI), Charlie Villanueva (DET).
Leikmenn út: DeJuan Blair (WAS), José Manuel Calderón (NYK), Vince Carter (MEM), Samuel Dalembert (NYK), Wayne Ellington (LAL), Bernard James, Shane Larkin (NYK), Shawn Marion (CLE), Gal Mekel.
 
Memphis Grizzlies: gríslingarnir frá Memphis hafa verið næstumþví lið um nokkurt skeið, verið skeinuhættir en ekki tekist að komast almennilega langt inn í úrslitakeppnina, ef vorið 2013 er ekki tekið með, en þá var þeim sópað í úrslitum vesturdeildar. Hvort það dugi að bæta við öldnum Vince Carter verður að koma í ljós.
Leikmenn inn: Jordan Adams (R), Vince Carter (DAL), Jarnell Stokes (R).
Leikmenn út: Ed Davis (LAL), Jamaal Franklin, James Johnson (TOR), Mike Miller (CLE).
 
New Orleans Pelicans: eftir fyrsta leik tímabilsins er Anthony Davis kominn með stjörnustatus hjá mörgum, en líklegt má teljast að þessi geðþekki einbrúnungur springi endanlega út í vetur. Hvort það dugi til að koma þeim í úrslitakeppnina í fyrsta sinn síðan Chris Paul stakk af til LA verður að koma í ljós, en þangað til verður bæði skemmtilegt og ógnvænlegt að fylgjast með risatvíeykinu Davis og Omer Asik.
Leikmenn inn: Omer Asik (HOU), Jimmer Fredette (CHI), John Salmons (TOR), Russ Smith (R), Patric Young (R).
Leikmenn út: Al-Farouq Aminu (DAL), Melvin Ely, Anthony Morrow (OKC), Brian Roberts (CHA), Jason Smith (NYK), James Southerland.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -