Tekinn var púlsinn á Dagbjörtu Samúelsdóttur og Guðbjörgu Sverrisdóttur að leik loknum.
Eftir spennandi leik hafði Dagbjört þetta að segja um einvígin við Val á þessu tímabili:
“Við erum búnar að taka tvo leiki svona. Sem eru mjög spennandi, farið í þrjár framlengingar. Þannig við vissum að þetta yrði jafn leikur, svipuð lið”.
Aðspurð út í muninn á frammistöðunni í öðrum og þriðja leikhluta:
“Ætli Gústi hafi ekki öskrað bara nóg. Við heyrðum alveg í honum eftir fyrsta leikhluta”.
“Auðvitað koma þær til baka. Það er aldrei hægt að vera viss um að vinna í hálfleik. Það er alltaf hægt að koma til baka”.
Guðbjörg hafði þetta að segja um muninn á spilamennsku liðsins í öðrum og þriðja leikhluta:
“Við töluðum um það í hálfleik að við hefðum verið skelfilega lélegar og gætum gert miklu betur. Þannig við ákváðum að hífa okkur upp”.
Og hvað það var sem varð þeim að falli í framlengingunni:
“Já það varð smá misskilningur, við héldum að þetta væri sigur þristur en þetta var bara jöfnunar þristur”.
“Við létum það fara í taugarnar á okkur og vorum allar pirraðar. Það voru allir eitthvað að væla yfir dómarunum eða væla útaf þessu eða væla útaf hinu. Í staðinn fyrir að hætta væla og spila körfubolta þá létum við það bara fara í okkur”.




