HomeFréttirLebron lebronaður

Lebron lebronaður

 Lebron James hefur verið þekktur fyrir sín eltiblokk (e. chasedown blocks), en margur leikmaður NBA deildarinnar hefur orðið að fórnarlambi íþróttahæfileika Lebrons. NBA aðdáendur hafa þó ekki þurft að venjast því að Lebron sjálfur sé lebronaður, en Gordon Hayward leikmaður Utah Jazz bauð Lebron upp á smá smakk af eigin meðali í leik liðanna í nótt. Hayward lét þó ekki þar við sitja og bætti við troðslu í framhaldinu á hinum enda vallarins.
 
 
Öll sagan er þó ekki sögð, en títtnefndur Hayward kláraði svo leikinn með flautukörfu, sem innsiglaði óvæntan sigur Utah Jazz á meistaraefnum Cleveland Cavaliers.
 
Fréttir
- Auglýsing -