Snæfell höfðu betur í kvöld gegn Haukum 77-80 í gríðarlega jöfnun og spennandi leik sem fór í framlengingu, fjórðu framlengingu Hauka í seinustu þremur leikjum, þar sem vítaskotin skiptu gríðarlega miklu máli.
Leikurinn var mjög jafn allan leikinn og komst hvorugt liðið aldrei meira en 5-6 stigum yfir í senn.
Eins og kom fram fyrr í dag þá lék Lele Hardy með hlífðargrímu þar sem hún nefbrotnaði hugsanlega á æfingu en það tók hana ekki nema 5 mínútur að losa sog við hana. Snæfell virtust ætla leiða eftir fyrsta leikhluta 16-21 en Sólrún Inga Gísladóttir var ekki á því og smellti hún niður spjaldið “on’í” þrist er leikklukkan gall.
Sólrún var sjóðandi og byrjaði hún annan leikhluta á öðrum þrist og bætti svo fljótlega við öðrum. Annars voru Haukar mjög ólíkar sjálfum sér, þær eru ekki vanar að vera liðið sem frákastar mun verr. En Snæfell hirtu nánast öll fráköst í fyrri hálfleik, hvort sem varnar- eða sóknarfráköst. Snæfell enduðu leikhlutann á 8-3 kafla og leiddu því 38-41 í hálfleik. Þær hefðu átt 8-0 kafla ef Haukar hefðu ekki sett niður annan flautuþrist líkt og í fyrsta leikhluta.
Þriðji leikhlutinn var mjög sérstakur en hvorugu liðinu tókst að skora seinustu 4,5 mínúturnar. Ekki var það skortur á mögulegum færum sem olli því, boltinn vildi hreinlega ekki fara ofan í körfuna.
Haukum tókst að skora snemma í fjórða en Snæfell þurftu að bíða í rúmar 3 mínútur til viðbótar eftir sínum stigum. Þrátt fyrir það var leikurinn mjög jafn og spennandi. Haukar virtust vera komnar með unninn leik í hendurnar þegar þær voru 5 stigum yfir með 33 sekúndur til leiksloka en einbeitingarleysi í vörninni gaf Hildi Sigurðardóttur opið þriggjastigaskot sem hún setti að sjálfsögðu niður. Gunnhildur Gunnarsdóttir stal síðan boltanum af Dagbjörtu Samúelsdóttur sem braut á henni og sendi á línuna með 7 sekúndur eftir þar sem hún jafnaði leikinn.
Í framlengingunni voru síðan hólmarar sterkari þar sem þær fóru oftar á línuna og tóku mörg mikilvæg fráköst. Hardy var þó ekki langt frá því að senda leikinn í framlengingu númer tvö.
Mynd/ Hildur skoraði ansi mikilvægan þrist í lok fjórða leikhluta




