ÍR vann í kvöld líklega besta endurkomuleik tímabilsins þegar þeir kláruðu Grindavík á lokasprettinum í Hellinum í kvöld. Grindvíkingar áttu leikinn til að byrja með og náðu strax í fyrsta leikhluta 13 stiga forskoti sem varð svo 20 stig í hálfleik. Þeim tókst að auka þann mun í 22 stig á tímabili en í fjórða leikhluta mætti nýtt ÍR lið sem gjörsamlega keyrði yfir gestina. Í stuttu máli kláruðu ÍR-ingar fjórða leikhluta 30-7 og unnu á endanum 5 stiga sigur við gríðarlega mikinn fögnuð leikmanna og stuðningsmanna ÍR, 90-85. Þrír leikmenn ÍR deildu með sér titlinu stigahæsti maður liðsins en það voru félagarnir Trey Hampton, Sveinbjörn Claessen og Matthías Orri Sigurðarson en þeir settu allir 18 stig. Í liði Grindavíkur átti Ómar Örn Sævarsson fínan leik með 16 stig, 12 fráköst og 7 stoðsendingar en Oddur Rúnar Kristjánsson var stigahæstur með 20 stig.
Grindvíkingar voru beittari sóknarlega í upphafi leiks og nýttu skotin undir körfunni vel, eftir 3 mínútur af leik voru þeir 2-6 yfir. Þeir létu kné fylgja kviði og voru komnir með 12 stiga forskot þegar fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaður 7-19. Óli Ólafs lét heimamenn finna fyrir sér og hafði þá skorað 8 stig eða einu stigi meira en ÍR. Bjarni Magnússon tók þá leikhlé og las yfir sínum mönnum. Stigunum rigndi niður eftir leikhlé og þrátt fyrir heiðarlegar tilraunir ÍR-ingar til þess að minnka muninn þá svöruðu gestirnir alltaf um hæl. Þegar flautað var til loka fyrsta leikhluta var forskot Grindavíkur 13 stig, 19-32. Það var Rodney Alexander sem setti glæsilegan þrist sem söng í netinu um það bil einni sekúndu áður en leiktíma lauk.
Grindvíkingar héldu uppteknum hætti í seinni hálfleik og juku forskot sitt hægt og rólega. Þrátt fyrri að Ólafur, sem var stigahæsti leikmaður Grindavíkur eftir fyrsta leikhluta, sæti meirihluta annars leikhluta náðu þeir að bæta í forskotið og höfðu náð því upp í 20 stig þegar flautað var til hálfleiks. Staðan var þá 33-53 og útlitið ekki bjart fyrir ÍR
Heimamenn mættu svo af krafti í seinni hálfleik og höfðu skorað 8 stig gegn fyrstu tveimur stigum Grindavíkur þegar Sverrir Þór tók leikhlé fyrir gestina, 41-56. Gestirnir sátu ekki lengi á sér heldur settu þeir næstu 5 stig leiksins eftir tvo stolna bolta sem skrifast á óvandaðan sóknarleik ÍR. Grindavík lét ekki þar við sitja heldur létu þristunum rigna yfir heimamenn og höfðu náð 22 stiga forskot þegar fjórar mínútur voru liðnar af þriðja leikhluta, 45-67. Rodney Alexander lét einhver óvönduð orð falla þegar þriðji leikhluti var hálfnaður og líkaði dómurum leiksins það ekki, þeir dæmdu því tæknivillu og Matthías Orri fór á línuna. Rodney var þar að fá sína fjórðu villu og fór rakleiðis á bekkinn í hvíld. Leikurinn virtist vera kominn í ákveðið jafnvægi hvað stigamun varðar en Grindvíkingar hleyptu ÍR ekki mikið nær en þessi 20 stig og þegar einn leikhluti var eftir munaði 18 stigum, 60-78.
Það voru svo heimamenn sem byrjuðu aftur betur í upphafi fjórða. Þeir minnkuðu muninn niður í 12 stig áður en Grindavík náði að skora sín fyrstu stig í leihlutanum, 66-78. Það var svo Ómar Örn sem skoraði fyrstu stig gestanna þegar þrjár og hálf mínúta var liðin af fjórða leikhluta. ÍR stefndi hraðbyr á að gera leikinn spennandi þegar fjórar og hálf mínúta var eftir, þeir stálu þá boltanum tvær sóknir í röð. Annar boltinn endaði í höndunum á Trey Hampton sem tróð boltanum með látum. 71-81. Óli Óla braut svo af sér í þeirri næstu og fékk dæmt á sig ásetningsbrot sem var hans fimmta villa. Hann var vægast sagt óánægður með þá ákvörðun dómara og uppskar tæknivillu í kjölfarið. Matthías Orri fór á línuna og minnkaði muninn á liðunum í 6 stig, 75-81, og ÍR fékk boltan á hliðarlínunni. Stuðningsmenn ÍR voru skiljanlega gríðarlega ánægðir með þetta, stóðu á fætur og létu vel í sér heyra. Sveinbjörn Claessen minnkaði muninn svo ennþá meira í næstu sókn og allt í einu munaði bara 4 stigum á liðunum og leikurinn orðinn æsispennandi. Rodney Alexander fékk sína fimmtu villu og munaði um minna fyrir Grindavík þar sem tveir af lykilmönnum þeirra sátu núna á bekknum með fimm villur.

Stemmingin var öll með ÍR þegar Ragnar Örn Bragason stal boltanum af Ómari , brunaði fram og tróð með látum. Stuðningsmenn ÍR gjörsamlega trylltust og ekki versnaði stemmingin þegar ÍR komst yfir stuttu seinna í stöðunni 84-83. Ragnar Örn hafði þá tekið 2 fráköst, stolið einum bolta og skorað 2 stig á innan við einni mínútu. Það var svo ekki fyrr en að Svenni Claessen kom ÍR þremur stigum yfir, 86-83, að Sverrir Þór tók leikhlé fyrir Grindvíkinga með 1:18 eftir á klukkunni. ÍR gékk á lagið, skoruðu 6 stig gegn 2 stigum Grindavíkur á lokakaflanum og fögnuðu gríðarlega í leikslok, 90-85.
Umfjöllun og myndir : [email protected]




