Hinn margreyndi Justin Shouse setti myndarlega flautukörfu undir lok fyrri hálfleiks í góðum sigri Stjörnunnar á Fjölni í kvöld.
Þegar 5.9 sek voru eftir á leikklukkunni misstu Fjölnismenn boltann undir körfu Stjörnumanna. Hrafn Kristjánsson þjálfari Stjörnunnar brá þá á það ráð að taka leikhlé og lagði upp leikaðferð fyrir heimamenn sem átti að enda með sniðskoti fyrir Marvin Valdimarsson. Justin Shouse fékk svo boltann í innkastinu og virtist yngjast um nokkur ár, skeiðaði völlinn á methraða og náði að koma skoti af áður en hljóðmerki tímavarðar gall við lok hálfleiksins, sem skautaði af spjaldinu og rétta leið ofan í hringinn.
Fréttaritari karfan.is tók sig til og tímamældi þetta, en alls liðu 5.2 sek frá því að Justin fékk boltann í hendurnar og þar til hann var búinn að losa hann á hinum enda vallarins, en eins og áður sagði voru 5.9 sek eftir á leikklukkunni.




