HomeFréttirSveinbjörn Claessen: finnst við eiga svo mikið meira inni

Sveinbjörn Claessen: finnst við eiga svo mikið meira inni

 

Sveinbjörn Claessen fangaði vel og innilega öðrum sigri tímabilsins með stuðningsmönnum ÍR í kvöld enda ein skemmtilegasta endurkoma í körfuboltaleik hér á landi í langan tíma staðreynd.  Sveinbjörn átti fínan leik í dag með 18 stig, 2 stoðsendingar og 4 fráköst og var stigahæsti maður liðsins ásamt Trey Hampton og Matthíasi Sigurðarsyni.  

 
 

Þetta hlítur að hafa verið gríðarlega mikilvægur sigur fyrir ykkur, andlega?

“Já, þetta er rosalegur móralskur sigur fyrst og fremst.  Við höfum lent í einum svona leik í vetur á móti Njarðvík þar sem að við lentum langt undir og létum þá bara jarða okkur.  Það er rosalega gott að vita það og fá staðfestingu á því að við höfum það í okkur og getum komið til baka”. 

 

Má ekki segja að þetta hafi verið liðssigur, það þurfti ekki neinn einn leikmaður að eiga stórleik til að ná þessum sigri.

“Algjörlega, það voru allir að leggja í púkkið.  Ég held að stigataflan sýni það, líka eins og Raggi hérna sem kom ótrúlega flottur inn.  Ég veit ekki hvað hann stal mörgum boltum og hérna í restina á móti Ómari sem kom okkur held ég yfir eða ég man það ekki.  Það er ótrúlega gott að ná svona leik loksins.  Það þurfti svona framlag frá svona mönnum, Matti kom heldur betur sterkur inn og útlendingarnir eru að smella ágætlega inní þetta.  Hamid líka og allir bara með smá sem þurfti til”. 

 

Helduru að þið getið byggt á þessu og haldið svona áfram?

Held ég?  Ég veit það.  Ég veit það, þetta er svona fraspurning en auðvita. Við erum hundfúlir með  stöðuna sem við erum í.  Af þessum fjórum tapleikjum þá er einn verðskuldaður í þeim skilningi.  Við erum hundfúlir að hafa ekki tekið þessa fjóra sem við töpuðum með 5 stigum eða hvað það var.  Okkur finnst við eiga svo mikið meira inni. 

 

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -