HomeFréttirHaukar ekki í erfiðleikum með Stjörnuna

Haukar ekki í erfiðleikum með Stjörnuna

Stjarnan tók á móti Haukum í 16 liða úrslitum Poweradebikarsins í dag. Fyrir fram mátti ætla að á brattan yrði að sækja fyrir fyrstu deildar lið Stjörnunar gegn úrvalsdeildarliði Hauka. En eftir að kom í ljós að Ívar Ásgrímsson ákvað að hvíla Lele Hardy í leiknum glæddist aðeins yfir Stjörnustúlkum. Leikurinn byrjaði ágætlega jafn og var Stjarnan meira að segja yfir 16-14 þegar tvær mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta. En eftir það tóku Haukar meira minni völdin og tryggðu sér að lokum 63-85 sigur í dag.
 
Haukar enduðu nefnilega fyrsta leikhlutann á svakalegum kafla þar sem þær fóru illa með Stjörnustúlkurnar og leiddu 17-28 að honum loknum. Haukar komust mest 20 stigum yfir í öðrum leikhluta áður en Stjarnan datt í gírinn og tókst að laga stöðuna í 32-42 í hálfleik. Stjarnan komst ekki nær það sem eftir lifði leiksins og bættu Haukarnir hægt og rólega við þar til að leikslokum.
 
Sylvía Rún Hálfdanardóttir tók við kefli Lele Hardy og var gríðarlega nálægt þrefaldri tvennu en hún skoraði 28 stig, tók 9 fráköst (undirritaður er þó á því að hún hafi ekki fengið skráð á sig rétt magn frákasta og var sannarlega með yfir 10 fráköst), 8 stolna bolta, 4 stoðsendingar og 1 “chase down block” í anda LeBron James.
 
Hjá Störnunni gerðu Bryndís Hanna Hreinsdóttir, Bára Fanney Hálfdanardóttir og Heiðrún Ösp Hauksdóttir allt sem þær gátu til að halda Stjörnunni inn í leiknum en breidd Hauka einfaldlega og mikil fyrir Stjörnuliðið. En Bryndís var með 23 stig og 6 fráköst, Bára með 16 stig og 5 fráköst og Heiðrún með 12 stig og 6 fráköst.
 
Hjá Haukum voru 6 leikmenn með 7 til 13 stig.
 
Mynd – Axel Finnur/ Dagbjört Samúelsdóttir var með 8 stig í dag
Fréttir
- Auglýsing -