Valsmenn mættu af miklum krafti og voru ákafir í varnarleiknum. Gestirnir voru ekki að nýta skotin sín vel í upphafi og virtust ekki vera með á nótunum. Þegar fyrsti leikhluti var hálfnaður leiddu Valsmenn, 16-7. Stuttu seinna tók Ingi Þór leikhlé fyrir Snæfell en þá stóðu tölur 18-8. Valsmenn létu ekki þar við sitja og spiluðu fanta góðan varnarleik, þeir vörðu skot undir körfunni í tvígang á stuttum kafla og héldu þannig forskotinu. Þegar ein mínúta var eftir var forskot Valsmanna komið í 14 stig, 25-11 og Snæfell þá búið að klikka úr 6 skotum í röð og þar á meðal sniðskot og opin þriggja stiga skot. Valsmenn leiddu svo með þessum 14 stigum þegar fyrsta leikhluta lauk, 28-14.
Snæfell settu fyrstu 5 stig annars leikhluta og sýndu smá klærnar í vörn. Það var ekki fyrr en eftir þrjár mínútur sem fyrstu stig Valsmanna í öðrum leikhluta leit dagsins ljós og þá munaði 10 stig á liðunum, 31-21. Christopher Woods, sem mætti á sinn gamla heimavöll, virtist á stundum ætla að reyna að vinna leikinn uppá sínar egin spítur. Hann hafði tekið 12 af 19 skotum Snæfells í leiknum og aðeins nýtt 4 af þeim þegar Snæfell tók leikhlé eftir fjórar mínútur af leik í öðrum. Snæfell tókst þó að minnka muninn hægt og rólega með flottum varnarleik. Siggi Þorvalds datt í gang og minnkaði muninn í 3 stig þegar þrjár mínútur voru eftir og Valsmenn tóku leikhlé, 33-30. Siggi átti sömuleiðis stigin sem komu Snæfell yfir í fyrsta skiptið í leiknum í stöðunni 33-34 og bætti svo einu stigi við af vítalínunni. Því forskoti héldu Snæfellsmenn þangað til flautað var til leikhlés, 36-38.
Stigahæstur í lið Snæfells í hálfleik var Christopher Woods með 12 stig og 7 fráköst en næstu menn voru Sigurður Þorvarldsson með 10 stig og Snjólfur Björnsson með 6 stig. Hjá Val var Danero Thomas stigahæstur með 11 stig en næstur var Illugi Auðunsson með 9 stig og 9 fráköst.
Snæfell voru aftur ákveðnari í upphafi þriðja leikhluta og settu 7 stig gegn einu stigi Valsmanna á fyrstu þremur mínútunum leikhlutans. Þar á meðal setti Stefán Karel stórglæsilegan alley oop troðslu eftir sendingu frá Bracey. Liðin skiptust á sitgum næstu mínúturnar og Snæfell gekk brösulega að slíta Valsmenn frá sér. Þegar þriðji leikhlut var hálfnaður munaði 6 stigum á liðunum, 43-49. Valsmenn áttu þá næstu 6 stig leiksins en Danero Thomas jafnaði leikinn með þrist, 49-49. Það var jafnt á öllum tölum næstu mínútur en Snjólfur Björnsson kom Snæfell í 3 stiga forskot þegar ein mínúta var eftir af þriðja, 53-56. Chris Woods átti svo seinasta orðið í leikhlutanum með sniðskoti þegar 2 sekúndur voru eftir og munaði því fimm stigum þegar einn leikhluti var eftir, 53-58.
Snæfell byrjaði náði 7 stiga forskoti í upphafi fjórða leikhluta og þegar þrjár mínútur voru liðnar setti Christ Woods fjögur stig í röð úr hraðaupphlaupum. Valsmenn tóku þá leikhlé enda komnir 11 stigum undir sem var stærsta forskot gestanna fram að því í leiknum, 56-67. Snæfell bætti svo hægt og rólega í forskotið og Chris Woods fór þar fremstur í fylkingu og nýtti hvert hraðaupphlaupið á fætur öðru. Valsmenn tóku svo aftur leikhlé þegar 4:27 voru eftir af leiknum og forskot gestanna komið í 16 stig, 59-75. Þeir bitu þó aðeins frá sér og höfðu minnkað muninn niður í 9 stig þegar tvær mínútur voru eftir, 67-76 sem dugði þó skammt. Snæfell hafði á endanum 11 stiga sigur 69-80.
Torfi Magnússon var með myndavélina í Vodafonehöllinni í kvöld og má sjá myndasafnið hans hér




