Haukar tóku á móti Breiðablik í kvöld í 12. umferð Dominosdeildar kvenna. Var þetta jafnframt þriðji leikur Hauka á sex dögum. Það virtist þó ekki vera nein þreyta í leikmönnum Hauka þar sem þær byrjuðu af miklum krafti. Breiðablik áttu hins vegar frábæran annan leikhluta en náðu ekki að fylgja honum eftir í seinni hálfleik og voru Haukar sterkari aðilinn það sem eftir lifði leiks og unnu sanngjarnan 75-60 sigur.
Breiðablik hóf leik með áhugavert byrjunarlið en að frátalinni Arielle Wideman þá byrjaði Andri Þór Kristinsson með alla leikreyndustu leikmenn sína á bekknum. Í upphafi leiksins skiptust liðin á körfum þangað til í stöðunni 6-5 en þá fóru Haukar á flug og juku muninn í 13-5 á tveim mínútum. Guðrún Ósk Ámundadóttir var með frábæra byrjun fyrir Hauka eða 7 stig á fyrstu fjórum mínútunum. Breiðablik hélt byrjunarliði sínu inn á í tæpar sjö mínútur en þá kom fimmföld skipting. Hún hafði ekki áhrif á gang mála og bættu Haukar bara í og leiddu 24-11 að loknum fyrsta leikhluta. Guðrún Ósk var sjóðandi í leikhlutanum og var með 11 stig.
Wedgie átti sér stað og fengu snapchat vinir körfunar mynd af því. Ef þú ert ekki ein/n af þeim þá er um að gera að bæta úr því. Snapchat: karfan.is
Byrjunarlið Breiðabliks hóf annan leikhlutann og yfirspiluðu þær Hauka 8-2 á fyrstu fimm mínútunum þar sem Krist-Þristbjörg Pálsdóttir (sjá viðtal) setti niður tvo góða þrista. Hún var þó ekki hætt og átti eftir að bæta við fjórum stigum til viðbótar áður en leikhlutinn var búinn. Breiðablik kom aftur með fimmfalda skiptingu og hafði hún engin áhrif á liðið sem hélt áfram að spila glimmrandi vel. Þær grænklæddu enduðu síðan fyrri hálfleikinn á 6-0 kafla og voru því aðeins tveimur stigum undir í hálfleik, 33-31. Breiðablik vann því annan leikhlutann 20-9.
Haukar komu mjög ákveðnar til leiks í seinni hálfleik og voru þær búnar að yfirspila Breiðablik 8-2 á fyrstu þremur mínútunum. Þá tók Andri Þór leikhlé í von um að breyta gangi mála. Breiðablik fóru að skora en þeim tókst ekki að stöðva sókn Hauka þar sem Lele Hardy var óstöðvandi, skipti ekk sköpum hvort hún var undir körfunni eða fyrir aftan þriggjastigalínuna, allt fór ofan í. Hún sallaði niður 11 stigum í leikhlutanum. Haukum tókst því að auka muninn og endaði leikhlutinn í stöðunni 57-45.
Fyrri hluti fjórða leikhluta einkenndist af miklu hnoði og töluverðu af mistökum. Breiðablik voru þó sterkari aðilinn og voru 8-3 yfir. En þá kom Hardy inn á og var hún fljót að setja 5 stig og jafna leikhlutann í 8-8. Það stoppaði alla möguleika Breiðabliks á að komast inn í leikinn og fjaraði leikurinn út eftir það þar sem bæði lið skiptust á körfum. Lokatölur 73-60.
MYND/ Guðrún Ósk Ámundadóttir var rosaleg í fyrsta leikhluta




