HomeFréttirJoanna Harden send heim

Joanna Harden send heim

Joanna Harden hefur spilað sinn seinasta leik fyrir Val en Ágúst Björgvinsson staðfesti það Karfan.is í kvöld.  Joanna spilaði ekki með Val í kvöld sem tapaði gegn Keflavík í Vodafonehölinni.  Joanna hefur spilað 11 leiki fyrir Val á tímabilinu og í þeim leikjum skorað að meðaltali 26 stig, tekið 6 fráköst og gefið 3,5 stoðsendingar.  Ágúst segir að Valskonur muni fá nýjan erlendan leikmann eftir áramót en reglur leyfa það ekki að liðið fái nýjan leikmann í desember.  
 
 Valskonur munu því spila útileik gegn Haukum og heimaleik gegn Grindavík án erlends leikmanns.  Þær eru sem stendur í 4. sæti deildarinnar, 4 sætum á eftir Haukum og tveimur stigum á undan Grindavík.  
 
 
Mynd : Torfi Magnússon 
Fréttir
- Auglýsing -