HomeFréttirKeflavík bikarmeistari í 10. flokki stúlkna ! !

Keflavík bikarmeistari í 10. flokki stúlkna ! !

 

Keflavík tryggði sér bikarmeistaratitil í 10. flokki stúlkna í kvöld með glæstum sigri á sameinuðu lið Ármanns/Hrunamanna.  Sigur Keflavíkur var í raun aldrei í hættu en þær tóku afgerandi forystu strax í fyrsta leikhluta og leiddu allan leikinn.  Það var Katla Rún Garðarsdóttir sem var útnefnd Lykilmaður leiksins í lok leiks eftir glæsilega frammistöðu.  

 

Í byrjunarliðið Keflavíkur var í dag voru Birna Valgerður Benónýsdóttir, Elsa Albertsdóttir, Birta Rós Davíðsdóttir, Katla Rún Garðarsdóttir og Þóranna Kiki Hodge-Carr.  Byrjunarlið Á/H var Jónína Þórdís Karlsdóttir, Þórdís Jóna Kristjánsdóttir, Birgit Ósk Snorradóttir, Ragnheiður Einarsdóttir og Arndís Úlla Björnsdóttir. 

 

Birna Valgerður setti fyrstu stig leiksins fyrir Keflavík sem pressaði hátt strax frá upphafi og létu Á/H hafa mikið fyrir hlutunum.  Á/H voru að leita nokkuð að þriggja stiga skotinu sem var ekki að detta hjá þeim í upphafi leiks.  Þegar fyrsti leikhluti var rúmlega hálfnaðu var Keflavík komið með ágætis forskot og leiddu 10-2.  Árni Þór, þjálfari Ármanns/Hrunamanna tók þá leikhlé fyrir sínar stúlkur.  Keflavík var ekki á því að breyta gangi leiksins og settu 5 stig strax í kjölfar leikhlésins.  Eydís Eva Þórisdóttir setti þrjú af þeim stigum, ískalt úr hraðaupphlaupi lét það ekkert á sig fá.  Á/H náðu að setja nokkur stig áður en flautað var til loka leikhlutans en forskot Keflavíkur var þó alltaf öruggt.  Eftir fyrsta leikhluta var það forskot 13 stig, 19-6. 

 

Á meðan skotin duttu hjá Keflavík í upphafi seinni þá var það ekki raunin hjá Á/H, varnarleikur Keflavíkur var að reynast þeim rosalega erfiður og sérstaklega há pressa.  Þegar annar leikhluti var hálfnaður munaði 21 stigi á liðunum, 29-8.  Keflavík bætti hægt og rólega í forskotið og bættu við fimm stigum áður en fyrsti þristur Á/H leit dagsins ljós, en það var Þórdís Jóna Kristjánsdóttir sem setti hann.  Þegar flautað var til hálfleiks munaði 28 stigum, 41-13. 

 

Stigahæst í liði Keflavikur í hálfleik var Eydís Eva Þórisdóttir með 11 stig, þar af þrjá þrista.  Næstar voru Birna Valgerður Benónýsdóttir með 8 stig og Þóranna Kika Hodge-Carr með 6 stig.  Í liði Ármanns/hrunamanna var Þórdís Jóna Kristjánsdóttir með 7 stig en næstar voru Arndís Úlla Björnsdóttir, Ragnheiður Einarsdóttir og Birgit Ósk Snorradóttir allar með 2 stig. 

 

Katla Rún Garðarsdóttir byrjaði þriðja leikhluta af krafti fyrir Keflavík og setti tvö stig úr hraðaupphlaupi strax eftir 10 sekúndur  sem Á/H svaraði með hraðaupphlaupi stuttu seinna, 43-17.  Bæði lið voru að henda boltanum alltof oft frá sér á fyrstu mínútum leikhlutans og leikurinn var mjög hraður í kjölfarið.  Það virtist henta Á/H nokkuð vel því þær voru búnar að skora 13 stig þegar Björn Einarsson, þjálfari Keflavíkur tók leikhlé til þess að bregðast við frábæru áhlaupi Á/H.  Elsa Albertsdóttir setti stóran þrist fyrir Keflavík þegar þrjár mínútur voru eftir  af leikhlutanum en Á/H hafði þá minnkað muninn um 10 stig og virtust til alls líklegar.  Hildur Ýr Káradóttir og Katla Rún Garðarsdóttir settu svo sitt hvoran þristin fyrir sitt lið með stuttu millibili.  Katla Rún átti svo seinustu stig leikhlutans, aftur fyrir utan þriggja stiga línuna og var orðin stigahæst í liði Keflavíkur sem leiddi með 24 stigum þegar fjórði leikhluti var eftir. 

 

Liðin skiptu stigunum bróðurlega á milli sín á fyrstu mínútum fjórða leikhluta og höfði bæði lið skorað 7 stig í leikhlutanum þegar Árni tók leikhlé fyrir Á/H þegar rúmlega fimm mínútur voru til leiksloka.  Það gekk ekki jafn vel að setja boltan ofaní körfuna á næstu mínútum og liðin skiptu þremur stigum á milli sín Keflavík í hag næstu tvær mínútur.  Botninn var dottinn úr leiknum og úrslitin ljós, Keflavík sygldi svo sigrinum heim við góðar undirtektir stuðningsmanna sinna í stúkunni.  Lokatölur leiksins voru 71-46 og besti leikmaður leiksins var án nokkurs vafa Katla Rún Garðarsdóttir sem var sjóðandi heit í seinni hálfleik og skoraði í heildina 26 stig, hirti 5 fráköst og stal 5 boltum í leiknum.

Til hamingju Keflavík!!!

Katla Rún Garðarsdóttir – Lykilmaður leiksins

 

 

 

Tölfræði leiksins
Myndasafn 

umfjöllun: [email protected]

Mynd: [email protected] 

 

Fréttir
- Auglýsing -