HomeFréttirHaukar bikarmeistarar í stúlknaflokki !!

Haukar bikarmeistarar í stúlknaflokki !!

 

Haukar tryggðu sér í kvöld bikarmeistaratitil í stúlknaflokki með glæstum sigri á Keflavík eftir æsispennandi leik og tilfiningaþrungnar lokasekúndur, 53-48.  Þóra Kristín Jónsdóttir og Sylvía Rún Hálfdánardóttir áttu báðar frábæran leik fyrir Hauka en það var Þóra Kristín sem var útnefnd Lykilleikmaður leiksins.  

 

Stigahæst í liði Hauka var Sylvía Rún með 12 stig og 11 fráköst en næstar voru það Þóra Kristín með 11 stig, 14 fráköst og 5 stolna bolta og Hanna Þráinsdóttir með 10 stig.  Í liði Keflavíkur var Thelma Dís Ágústsdóttir stigahæst með 15 stig og 10 fráköst en næstar voru Emelía Ósk Gunnarsdóttir með 11 stig og 9 fráköst og Elfa Falsdóttir með 9 stig. 

 

Í byrjunarliði Hauka voru Sylvía Rún Hálfdánardóttir, Hanna Þráinsdóttir, Þóra Kristín Jónsdóttir, Rósa Björk Pétursdóttir og Dýrfinna Arnardóttir.  Í byrjunarliði Keflavíkur voru Elfa Falsdóttir, Svanhvít Ösp Snorradóttir, Írena Sól Jónsdóttir, Emelía Ósk Gunnarsdóttir og Thelma Dís Ágústsdóttir. 

 

Bæði lið byrjuðu af nokkrum krafti og ákefð en Sylvía Rún Hálfdánardóttir setti þrist snemma sem kom Haukum yfir 5-4.  Haukar settu alveg í lás og þegar Keflavík komst í gegn þá duttu sniðskotin ekki.  Haukar komust því í 11-4 þegar leikhlutinn var rúmlega hálfnaður eftir tvö sóknafráköst frá Sylvíu og Þóra Kristín Jónsdóttir setti svo sitt skot niður.  Marín Rós Karlsdóttir, þjálfari Keflavíkur, tók þá leikhlé í þeirri von að breyta gangi leiksins.  Eftir 6 stigalausar mínútur hjá Keflavík rauf Emelía Ósk Gunnarsdóttir þögnina með laglegu sniðskoti eftir mikla baráttuni undir körfunni, 14-6.  Haukar bættu tveimur stigum við þetta forskot sitt og leiddu með 10 stigum eftir fyrsta leikhluta, 19-9. 

 

Dómarar leiksins tóku dómarahlé snemma í öðrum leikhluta til þess að sjá til þess að gólfið í höllinni væri keppnishæft en þá höfðu tvær stelpur hrunið í jörðina að því er virðist bara vegna þess að gólfið var sleipt.  Haukar settu svo í kjölfarið á þessu leikhléi fyrstu fjögur stig leikhlutans og fóru Keflvíkingar að pressa Hauka mjög hátt á völlinn.  Keflavík gerði nokkrar mannabreytingar á þessum tíma og Katla Rún sem varð bikarmeistari með 10. flokk stuttu áður kom inná og gerði sér lítið fyrir og hélt skotsýningunni áfram með flottum þrist.  Þar með höfðu Keflvíkingar sett 5 stig í röð og voru farnar að láta vel fyrir sér finna.  Haukar gáfu þó hvergi eftir og Hanna Þráinsdóttir setti tvö stig fyrir Hauka úr erfiðu skoti rétt áður en að Keflavík tók leikhlé.  Sterkur varnarleikur Keflavíkur dugði þeim þó ekki til þess að minnka muninn neitt af viti því stigin fylgdu ekki í kjölfarið.  Haukar voru 12 stigum yfir þegar tvær mínútur voru til hálfleiks, 31-19, og  leiddu þegar flautað var til hálfeiks með sama mun, 33-21. 

 

Stigahæst í hálfleik hjá Haukum voru Sylvía Rún Hálfdánardóttir og Hanna Þráinsdóttir með 8 stig hvor.  Næst var Þóra Kristín Jónsdóttir með 7 stig.  Í liði Keflavíkur var Emelía Ósk Gunnarsdóttir stigahæst með 5 stig en næstar voru Thelma Dís Ágústsdóttir með 4 stig og Elfa Falsdóttir og Katla Rún Garðarsdóttir með 3 stig hvor. 

 

Sylvía Rún spilaði ekkert í öðrum leikhluta vegna meiðsla í fingri og fékk aðhlynningu í þeirri von að hún kæmi svo aftur inná seinna í leiknum.  Haukar létu það þó ekki á sig fá og héldu uppteknum hætti í þriðja leikhluta.  Þær spiluðu hörku varnarleik og höfðu 15 stiga forskot þegar þriðji leikhluti var um það bil hálfnaður, 40-25.  Keflavík tók leikhlé stuttu seinna og heyrðist það langar leiðir frá bekk Keflavíkur að þjálfarar liðsins vildu sjá betri varnarleik.  Þóra Kristín Jónsdóttir var að spila ótrúlega vel bæði í sókn og vörn og þegar þriðji leikhluti var að líða undir lok leiddi hún í stigum, fráköstum, stoðsendinum og stolnum boltum af öllum á vellinum.  Þrátt fyrir það tókst Keflavík að setja fimm seinustu stig leikhlutans á síðustu 20 sekúndunum og minnkuðu muninn niður í 11 stig, 45-34.

 

Sylvía Rún kom aftur inná í fjórða leikhluta, vel bundin á vinstri hönd,  og var ekki lengi að stimpla sig inn með því að setja þrist og auka mun Hauka aftur í 12 stig, 48-36.  Thelma Dís Ágústsdóttir svaraði þeim þrist strax í þar næstu sókn og hélt líf í von Keflavíkur, 50-39.  Keflvíkingar settu næstu 6 stig og allt í einu var þetta orðinn leikur, 50-45, og Ingvar Þór, þjálfari Hauka, tók leikhlé til þess að reyna að stoppa áhlaup Keflavíkur.  Það var mikil spenna í leiknum og mistök á báða bóga í kjölfarið.  Liðin skiptust á körfum á næstu mínútum og munaði ennþá fimm stigum á liðunum þegar tvær og hálf mínúta var eftir, 52-47.  Keflvíkingar fengu feiki nóg af skotum og hirtu annaðhvort sóknarfráköst eða skotin þeirra varin útaf á lokamínútunni, það gekk þó ekki nógu vel að koma boltanum ofaní og hinumegin á vellinum tókst Haukum að gera það sama.  Þær fengu sex vítaskot á 10 sekúndna kafla þar sem þær hirtu alltaf sóknarfrákastið og Keflavík braut strax í kjölfarið.  Ekkert þessara skota fór hinsvegar ofaní og munaði því ennþá fjórum stigum á liðunum þegar Keflavík fór í sókn með 15 sekúndur á klukkunni.  Það dugði hins vegar ekki til og Haukar fögnuðu bikarmeistaratitlinum innilega.  

Myndasafn – Tomasz Kolodziejski 

Til hamingju Haukar !!

Þóra Kristín Jónsdóttir – Lykilmaður leiksins

 

 

umfjöllun : [email protected]

Mynd : [email protected] 

Fréttir
- Auglýsing -