HomeFréttirHaukar kláruðu Keflavík á 20 mínútum

Haukar kláruðu Keflavík á 20 mínútum

Haukar mættu Keflavík í kvöld í 23. umferð Dominosdeild kvenna. Haukar þurftu nauðsynlega á sigri að halda í kvöld ef þær ætluðu sér að eiga von um sæti í úrslitakeppninni. Lele Hardy var svo sannarlega mætt til leiks og ætlaði sér greinilega að tryggja liði sínu sigur sem og hún gerði en hún var með svakalegan leik er hún skoraði 38 stig, 25 fráköst og 6 stoðsendingar, eða 50 framlagsstig í 85-75 sigri Hauka í kvöld. Keflavík voru ekki góðar í fyrrihálfleik og voru það aðeins Birna Valgarðsdóttir og Ingunn Embla Kristínardóttir sem voru með rænu. Það var hinsvegar allt annað að sjá til Keflavíkurliðsins í þeim seinni en skaðinn úr fyrri hálfleik var hinsvegar of mikill og því sigur Haukastúlkna í raun aldrei í hættu.
 
Leikar fóru rólega af stað og var jafnræði með liðinum. Keflavík voru duglegar að næla sér í ‘og-víti’ en þær gerðu það í tvígang á fyrstu 4 mínútum leiksins. Haukar áttu þá 5-0 áhlaup á 45 sekúndum. Það fór illa í Keflavíkurstúlkur sem tókst ekki að skora í 4 og hálfa mínútu eða þangað til Birna Valgarðsdóttir setti þrist til að laga stöðuna í 16-10. Haukum gekk hins vegar allt í haginn og héldu þær áfram að auka í forystuna þar sem Lele Hardy fór fremst í flokki með 8 stig og 9 fráköst og leiddu þær 22-13 að loknum fyrsta leikhluta.
 
Ingunn Embla Kristínardóttir var sú eina sem sótti ákveðið að körfunni hjá Keflavík á meðan hinar voru í handboltaleik. Fyrir vikið jókst forysta Hauka auðveldlega og var staðan 35-20 eftir 4 mínútur í öðrum leikhluta en þá tók Sigurður Ingimundarson leikhlé. Keflavíkurstúlkur fóru að sækja harðar að körfunni eftir leikhléið en það var engu líkara en gamli Boston búálfurinn hafi tekið sér sæti á körfuhringnum því boltinn vildi alls ekki ofan í. Haukar með töluverða yfirburði í leiknum og leiddu 50-30 í hálfleik þar sem Hardy var í algjörum sérflokki með 22 stig og 16 fráköst á meðan að Birna var með 11 stig og 3 fráköst fyrir Keflavík.
 
Keflavík mættu ákveðnar til leiks í seinni hálfleik þar sem Birna skoraði 6 stig á fyrstu fimm mínútunum ásamt því að Elfa Falsdóttir skoraði 5 stig og stal boltanum. Það var allt annað að sjá til liðsins og voru þær gríðarlega stífar fyrir í vörninni. En þær réðu ekkert við Hardy né Maríu Lind Sigurðardóttir sem voru með 10 og 6 stig í leikhlutanum og sáu til þess að þessi fíni leikhluti hjá Keflavíkurstúlkur hjó muninn aðeins niður um 4 stig og það þökk sé flautuþrist hjá Ingunni.
 
Keflavík neituðu að leggja árar í bát og voru mjög aðgangsharðar og gáfu Haukum lítið. En Haukar létu ekki slá sig útaf laginu og áttu 7-0 kafla um miðbik fjórða leikhluta sem gerði endanlega út um möguleika Keflavíkur. Það þýddi ekki að Keflavík gæfist upp og áttu þær meira að segja 9-0 kafla áður en leikar enduðu. En Haukar voru hreinlega með of stóra forystu og var staðan 85-75 að leikslokum.
 
 
 
Mynd/ Það er ekki auðvelt að stöðva Lele Hardy
Fréttir
- Auglýsing -