Lykilleikmaður 4. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur, Birna Valgerður Benónýsdóttir. Í umferðinni skoraði hún 10 stig, tók 16 fráköst, gaf 4 stoðsendingar og varði 4 skot á þeim 27 mínútum sem að hún spilaði í góðum sigri liðsins á Skallagrím. Birna hefur verið góð það sem af er tímabili (4 leikir) Er með 13 stig og 9 fráköst að meðaltali í þessum fyrstu 4 leikjum sem að hún spilar með meistaraflokk.
Aðrar sem að við tilnefndum voru Carmen Tyson-Thomas fyrir frammistöðu sína gegn Grindavík, Danielle Rodriguez gegn Val og Gunnhildi Gunnarsdóttur gegn Snæfell.
Lykileikmaður 4. umferðar?
Gunnhildur G: Haukar – Snæ.
Birna Valgerður: Kef. – Skall.
D. Rodriguez: Stja. – Valur
C. Tyson Thomas: Gri -Nja— Karfan.is (@Karfan_is) October 19, 2016




