Leikmaður AE Larissa og íslenska landsliðsins, Sigurður Gunnar Þorsteinsson, tekur við tauminum á Snapchat aðgang karfan.is þessa helgina, en á morgun mun lið hans taka á móti Arkadikos í annarri deildinni grísku. Larissa fer vel af stað á tímabilinu, hafa unnið tvo fyrstu leikina, aþar sem að Sigurður m.a. skoraði 20 stig og tók 5 fráköst í síðasta leik.
Við mælum eindregið með því að fólk bæti karfan.is við á Snapchat hjá sér og fylgist með.




