Tveir leikir fóru fram í kvöld í Dominos deild karla og þrír í 1. deild karla. Úrslit kvöldsins í deild þeirra bestu nokkuð eftir bókinni þar sem að bæði Þór frá Þorlákshöfn og Stjarnan unnu sína leiki.
Stærstu fréttir kvöldsins eru koma þó kannski úr leikmannahópi Njarðvíkur. Innkoma Stefan Bonneau var hreint stórkostleg, þegar að leik lauk var kappinn búinn að skora 28 stig á aðeins 23 mínútum spiluðum. Einnig var gaman að sjá Pál Kristinnsson láta hendurnar standa fram úr ermum aftur fyrir Njarðvík, en það er þónokkuð síðan að áhangendur voru að reiða sig á slík framlög frá honum síðast.
Getur einhver staðfest að það sé árið 2016? Vaknaði í gær og 3 bestu stórumennirnir í deildinni eru Palli K, Hlynur og Flake! #dominos365
— Halldór Örn (@halldororn11) October 21, 2016
Úrslit kvöldsins:
Dominos deild karla
Haukar 77 – 82 Þór frá Þorlákshöfn
Njarðvík 83 – 94 Stjarnan
1. deild karla
Vestri 69 – 92 Hamar
Ármann 86 – 104 FSU
Valur 89 – 101 Fjölnir




