spot_img
HomeFréttirLykill: Amin Khalil Stevens

Lykill: Amin Khalil Stevens

 

Lykilleikmaður 3. umferðar er Amin Khalil Stevens, en hann átti hreint frábæran dag með Keflavík þegar að þeir unnu Snæfell nokkuð örugglega 111-81. Hann skoraði 32 stig, þar sem að 16 af 19 skotum hans rötuðu rétta leið, einnig tók hann 16 fráköst. Frammistaða hans í heildina skilaði honum heilum 47 framlagspunktum.

 

Aðrir tilnefndir voru Darrell Flake fyrir frammistöðu sína fyrir Skallagrím gegn Þór á Akureyri, Chris Caird fyrir frammistöðu sína fyrir Tindastól gegn ÍR og Tobin Carberry fyrir fammistöðu sína fyrir Þór frá Þorlákshöfn gegn Haukum.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -