Heil umferð fer fram í Dominos deild kvenna í dag. Deildin hefur farið af stað með þvílíkri flugeldasýningu að gjörsamlega ómögulegt er að nefna einhvern einn þessara leikja sem mest spennandi leikinn. Allir hefjast leikirnir kl. 19:15. Í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport er leikur Grindavíkur og Snæfells úr Mustad Höllinni.
Leikir dagsins:
Grindavík Snæfell – kl. 19:15 – í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Keflavík Valur – kl. 19:15
Skallagrímur Njarðvík – kl. 19:15
Haukar Stjarnan – kl. 19:15




