Hvað ætli leikmenn setji á fóninn rétt fyrir leik?
Við fengum leikmann Snæfells, Viktor Alexandersson, til þess að ljóstra upp fyrir okkur hvaða lög það væru sem hlustað væri á til þess að koma sér í gírinn.
Viktor og félagar hans í Snæfell heimsækja lið Þórs í Þorlákshöfn í kvöld. Leikur liðanna hefst kl. 19:15.
Viktor:
"Tónlistin á leikdag skiptir miklu máli hjá mér og gefur manni tóninn fyrir leikinn. Ég syng með öllum lögum sem ég kann þegar þau koma og tek stundum lagið fyrir strákana. Það væri svo sem ekkert að því ef að ég væri ekki þessi hrikalegi söngvari sem ég er"
Leiðin okkar allra – Hjálmar
Það fyrsta sem ég geri þegar ég er að koma mér af stað er að koma mér niður á jörðina, byrja undirbúningin á núlli svo að ekkert frai úrskeðis, þar koma Hjálmar fremstir í broddi fylkingar og byrja leikdaginn
Tvær Plánetur – Úlfur Úlfur
Úlfur Úlfur koma þessu svo rólega af stað en stigmagnandi, taka mig beint aftur á þjóðhátíð þar sem þeir voru rosalegir. Getur ekki klikkað!
Without me – Eminem
Eitt af þessum lögum sem er hægt að hlusta á fyrir hvern leik 100 tímabil í röð. Svo veit ég fátt skemmtilegra en að syngja með Eminem þó að ég nái ekki að fylgja textanum nema smá.
Sex on fire – Kings of leon
Lag sem ég hef tekið með mér úr nánast minniboltanum. Þegar við strákarnir stálumst í salinn að skjóta þá voru eldri krakkarnir með þetta í græjunum og þetta er eitt sem ég fæ ekki nóg af.
Adventure of a lifetime – Coldplay
Ég er með 7+1 regluna á þessu. Það eru 7 lög og svo 1 með Coldplay. Ekki alltaf sama lagið og oft sem ég skipti í takt við það hvernig ég vakna á morgnanna. Held að þetta sé sú regla sem er í alvörunni game changer í körfunni í dag
No diggity – Ched Faker
Þarna er kominn smá lægð í þetta aftur en þetta er lagið sem ég, Addi og Svenni tókum reglulega í eldhúsinu á Skúrnum í sumar. Oftast fyrir opnun og gaf deginum snemmbúinn lit. (Lagið er þó betra órafmagnað en það er ekki til svoleiðis á Spotify)
Silfurskotta – Emmsje Gauti, Aron Can
Stutt í leik og þetta er nákvæmlega seinasta vítamínsprautan sem þörf er á. Emmsje og Aron Can eru með homerun í þessu lagi sem er geggjað!
Þorparinn – Pálmi Gunnarsson
Þetta er bara eitthvað svo týpískur endir á þessum playlista. Það kemur aldrei neitt annað lag til greina, mjög mikilvægt fyrir útileiki að þetta sé með. Treysti alltaf á að Símon og Arnór komi þessu að þremur mínútum í leik heima.




