Lykilleikmaður 6. umferðar Dominos deildar kvenna var leikmaður Keflavíkur, Emelía Ósk Gunnarsdóttir. Hún skoraði 21 stig (82% skotnýting), tók 7 fráköst, stal 2 boltum og varði 2 skot á þeim 34 mínútum sem hún spilaði í 84-81 sigri þeirra á Val og situr lið hennar nú eitt á toppi deildarinnar eftir þessar fyrstu sex umferðir.
Aðrar tilnefndar voru Sólrún Inga Gísladóttir leikmaður Hauka, fyrir frammistöðu sína gegn Stjörnunni, Tavelyn Tillman leikmaður Skallagríms, fyrir frammistöðu sína gegn Njarðvík og Ashley Grimes leikmaður Grindavíkur, fyrir frammistöðu sína gegn Snæfell.
Lykilleikmaður 6. umferðar?
Emelía Ósk: Kef. – Valur
Sólrún Inga: Haukar – Stjarnan
T. Tillman: Skall. – Nja.
A. Grimes: Grin. – Snæfell— Karfan.is (@Karfan_is) October 26, 2016




