Það var Reykjavíkurslagur í 1. deild kvenna í dag þegar Fjölnir kom í heimsókn í Vesturbæinn.
Kaflaskil
Segja má að leiðir hafi skilið strax í dómarakasti. KR náði undirtökunum snemma leiks og lét forystuna aldrei af hendi. Fjölniskonur áttu erfitt með að brjóta þann þétta varnarmúr sem vesturbæjarliðið reisti og skorðuð lengi framan af leik nánast eingöngu úr vítaskotum. Þær náðu þó aðeins að klóra í bakkann undir lok fyrrihálfleik og laga stöðuna áður en flautað var til hálfleiks. Þegar liðin snéru til baka á parketið að hálfleik loknum skellti KR aftur í lás og sigldi öruggum sigri í höfn, lokastaðan 70-41 KR í vil.
Hetja
Hetja leiksins var hin kornunga og efnilega Ásta Júlía. Hún var stigahæst KR-inga með 17 stig og annaðeins af fráköstum. Það er virkilega gaman að sjá þegar ungir leikmenn láta svo kröftuglega að sér kveða eins og Ásta gerði í kvöld.
Kjarninn
Það var í raun aldrei spurning hvort liðið færi með sigur af hólmi í dag. Þó Fjölniskonur hafi átt fína spretti og barist af hörku allan leikinn þá þurfa þær að spýta í lófana ætli þær sér að koma sér af botni deildarinnar, þar sem þær sitja nú stigalausar. Sigurinn var mikilvægur fyrir KR í baráttunni við toppliðin um sæti í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.
Umfjöllun / Guðrún Gróa Þorsteinsdóttir
Mynd / Bára Dröfn Kristinsdóttir




