spot_img
HomeFréttirLeikmenn í stjórnmálum

Leikmenn í stjórnmálum

 

Mikið magn af leikmönnum hefur farið í gegnum NBA deildina frá því að hún var fyrst sett á laggirnar árið 1946. Í ljósi þess að á Íslandi er kosið í dag og í Bandaríkjunum verður kosinn forseti innan fárra daga ákváðum við að athuga aðeins stöðuna á því hvaða leikmenn hefðu bæði átt farsælan feril í deildinni sem og á sviði stjórnmála. 

 

 

Dave Bing

Bing er meðlimur frægðarhallar NBA deildarinnar sem á 12 ára feril sínum spilaði með þremur liðum, Washington Bullets, Boston Celtics og Detroit Pistons. Hann vann aldrei titilinn, en tókst samt sem áður að vinna hin ýmsu verðlaun s.s. nýliði ársins, var í 7 skipti í stjörnuleik deildarinnar og var árið 1996 valinn einn af 50 bestu leikmönnum deildarinnar frá upphafi.

 

Bing tók við sæti Kwame Kilpatrick, sem borgarstjóri Detroit borgar í Michigan eftir að sá þurfti að segja af sér vegna hneykslismáls og sat allt til ársins 2013. Þá ákvað hann að sækjast ekki eftir sætinu áfram, en borgin var gjaldþrota.

 

 

Bill Bradley

Bradley er annar meðlimur frægðarhallar NBA deildarinnar á þessum lista. Ferill hans sem atvinnumanns í körfubolta byrjaði á ári á Ítalíu áður en að hann færði sig yfir til New York Knicks. Þar spilaði hann í 10 ár og var t.a.m. í einu meistaraliðum félagsins til þessa, 1970 og 1973.

 

Bradley er einn aðeins tveggja leikmanna sem hafa unnið gull á Ólympíleikunum, meistaratitil í Evrópu sem og í NBA deildinni. Hinn er núverandi leikmaður San Antonio Spurs, Argentínumaðurinn Manu Ginobili.

 

Bradley var þingmaður fyrir New Jersey fylki á bandaríska þinginu í 20 ár, frá 1979 til ársins 1999.

 

 

Kevin Johnson

 

Kevin Johnson muna margir eftir sem nr.2 manns Phoenix Suns daga Charles Barkley. Þar fóru þeir meðal annars alla leið í úrslitin og töpuðu (eins og allir þar) fyrir Michael Jordan og hans mönnum í Chicago Bulls. Johnsons spilaði í 13 ár í deildinni og var á þeim tíma með 18 stig og 9 stoðsendingar að meðaltali í leik. Einnig var hann í 3 skipti valinn í stjörnulið deildarinnar.

 

Johnson er og hefur verið, síðan árið 2008, borgarstjóri höfuðborgar Kaliforníuríkis Bandaríkjanna, Sacramento. 

Fréttir
- Auglýsing -