Leikmaður Stjörnunnar, Marvin Valdimarsson, verður ekki með liðinu í næstu umferð deildarinnar, en þá heimsækja þeir Snæfell. Einhverjir voru að velta því fyrir sér afhverju leikmaðurinn hefði verið á skýrslu í leiknum gegn Keflavík og ekkert spilað, en þjálfari liðsins staðfesti það við okkur að hann hefði snúið sig í síðasta sniðskoti upphitunar fyrir leikinn og væri þessvegna frá. Engar frekari upplýsingar eru um hvort að leikurinn gegn Snæfell verði sá eini sem að leikmaðurinn missi af eða hvort þeir verði fleiri að svo stöddu.




