spot_img
HomeFréttirSjötti sigur Hattar í röð

Sjötti sigur Hattar í röð

 

Vestri og Höttur mættust í seinni leik sínum á helginni í 1. deild karla á Ísjakanum á Ísafirði í dag. Vestramenn byrjuðu talsvert betur en daginn áður og stóðu jafnfætis Hetti út fyrsta leikhlutan sem endaði 19-21. Höttur tók þó öll völd næstu 12 mínúturnar og komst mest 17 stigum yfir í byrjun þriðja leikhluta. Vestri vann sig þó aftur inn í leikinn og leit allt út fyrir spennandi fjórða leikhluta. Það varð þó ekki, gestirnir rúlluðu yfir heimamenn á síðustu sex mínútunum og uppskáru þægilegan 67-93 sigur.

Vendipunkturinn
Í stöðunni 64-71 fóru Hattarmenn á flug og skoruðu 20 ósvöruð stig í röð á meðan heimamenn létu pirringin fara með sig.

 

Frystikistan fljúgandi
Leikur Vestra snérist við til hins betra með innkomu Stígs Berg Sophussonar, einnig þekktur sem frystikistan fljúgandi, í þriðja leikhluta. Þessi 180 cm hái og nautsterki miðherji spilaði stífa og sterka vörn á Mirkó Stefán Virijevic og kom inn með mikla baráttu. Á tíma hans inn á fór liðið úr 17 stiga holu yfir í að vera 2 stigum undir í lok leikhlutans.

Í hnotskurn
Heimamenn sýndu mikla elju við að vinna sig aftur í leikinn en í fjórða leikhluta brotnuðu þeir saman eins og kókdós undir valtara þegar þeir lentu í mótlæti. Dómaratuð og tæknivillur einkenndu lokamínúturnar sem fara seint í sögubækurnar sem skemmtilegasti körfubolti sem spilaður hefur verið á Jakanum.

 

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun / Sturla Stígsson

Viðtöl / Þormóður Logi Björnsson – Jakinn Tv

 

Viðtöl:
 

Fréttir
- Auglýsing -