Leik ÍA-b og Stál-úlfs, sem fara átti fram í 3. deildinni í dag hefur verið frestað. Það er kannski ekki til frásögu færandi að leikjum sé frestað, en í dag var ástæðan nokkuð sérstök. Í upphitun hlóð einn leikmanna Stálúlfs í svokallaða krafttroðslu með þeim afleiðingum að hann endaði aftur í gófinu með hringinn í höndunum.
Ný tímasetning leiksins liggur ekki fyrir að svo stöddu og nokkuð ljóst að æft verður á eina körfu á Akranesi næstu daga.
Hér fyrir neðan má sjá myndir af spjaldinu og hringnum eftir atvikið.




