Októberfest Stjörnunar var frestað til 5. nóvember og enn er pláss fyrir örfá lið en um er að ræða körfuboltamót fyrir eldri leikmenn en leikið er í þrem flokkum, þ.e. 30+ kk, 40+ kk og 30+ kvennaflokkur.
Spilað verður um daginn og endar mótið með mat, drykk og söngskemmtun í Stjörnuheimilinu en maturinn kemur frá Mathúsi Garðabæjar.
Frekari upplýsingar eru hér fyrir neðan:





