Mikil ólga hefur verið í kringum Ergin Ataman, þjálfara tyrkneska karlalandsliðsins, í aðdraganda leiksins gegn Íslandi í undankeppni HM 2027 sem fram fer í Tyrklandi núna á sunnudaginn.
Ataman hefur sætt harðri gagnrýni í vikunni vegna ummæla sinna um reglur FIBA varðandi erlenda leikmenn og hefur nú sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hafnar ásökunum um kynþáttafordóma.
Upphaf málsins má rekja til þess að Ataman gagnrýndi að Tarik Biberovic teljist enn sem „náttúruvæddur“ (e. naturalized) erlendur leikmaður í tyrkneska landsliðinu, en hvert landslið má aðeins tefla fram einum slíkum leikmanni í einu. Ataman benti á að þjóðir á borð við Frakkland og Spán hefðu notið góðs af því að fá til sín „svarta leikmenn“ frá fyrrverandi nýlendum sem teljist ekki sem erlendir leikmenn samkvæmt reglum FIBA.

Franski landsliðsmaðurinn Evan Fournier brást hart við þessu á samfélagsmiðlinum X, benti á að nánast allir leikmenn franska Ólympíuliðsins væru fæddir í Frakklandi og spurði hvað húðlitur hefði með þjóðerni að gera. Þá gagnrýndi franska íþróttablaðið L’Équipe ummælin harðlega og sakaði Ataman um rasisma.
Í yfirlýsingu á Instagram í kvöld hafnar Ataman þessum ásökunum alfarið og segir hugtakið „svartur leikmaður“ einfaldlega vera algengt í tyrknesku körfuboltamáli án nokkurrar rasískrar merkingar.
„Sem þjálfari sem hefur á 30 ára ferli unnið með leikmönnum af öllum þjóðernum og tungumálum og ávallt átt í góðu sambandi við þá, vil ég taka skýrt fram að ég hafna þessum vísvitandi ásökunum L’Équipe alfarið,“ skrifar Ataman. „Sem manneskja sem hefur sjálf orðið fyrir kynþáttafordómum við og við, en hefur alltaf komið fram við allar þjóðir af virðingu, gæti ég aldrei liðið rasisma eða látið út úr mér ummæli með slíka merkingu.“
Tyrkland tekur á móti Íslandi á sunnudaginn eftir að hafa tapað gegn Ítalíu í gærkvöldi, á meðan íslenska liðið kemur fullt sjálfstrausts inn í leikinn eftir frækinn 113–101 sigur á Bosníu og Hersegóvínu í Laugardalshöll.





