HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild kvennaÞór Akureyri lagði Keflavík b í Bæjarins Beztu deild kvenna – Emma...

Þór Akureyri lagði Keflavík b í Bæjarins Beztu deild kvenna – Emma Karólína með 35 stig

Þór Akureyri vann 82–75 sigur á Keflavík b í eina leik kvöldsins í Bæjarins Beztu deild kvenna fyrir norðan.

Heimakonur í Þór byrjuðu betur og leiddu með sjö stigum í hálfleik, 42–35 (21–16, 21–19). Gestirnir úr Keflavík svöruðu vel fyrir sig í þriðja leikhluta og minnkuðu muninn niður í tvö stig fyrir lokaleikhlutann, 62–60, en Þórsarar voru sterkari á lokasprettinum og tryggðu sér sjö stiga sigur.

Emma Karólína Snæbjarnardóttir fór á kostum í liði Þórs með 35 stig, 11 fráköst, 5 stoðsendingar og 5 stolna bolta, og Nile Miller átti einnig stórleik með 22 stig, 11 fráköst og 8 stolna bolta. Hjá Keflavík b var Kamilla Nótt Bergsveinsdóttir stigahæst með 22 stig og 7 fráköst, Lísbet Lóa Sigfúsdóttir skoraði 13 stig, Oddný Hulda Einarsdóttir var með 12 stig og 7 fráköst og Rut Páldís Eiðsdóttir tók heilt 21 frákast auk þess að skora 11 stig.

Með sigrinum jafnar Þór Akureyri lið Selfoss að stigum í öðru til þriðja sæti deildarinnar með 10 stig eftir sex leiki, tveimur stigum á eftir toppliði Þórs Þorlákshafnar. Keflavík b situr sem fyrr í sjötta sæti með 6 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -