Íslenska kvennalandsliðið kórónaði frábæran fyrsta landsleikjaglugga í undankeppni EM 2029 í kvöld með því að valta yfir Aserbaídsjan á Ásvöllum, 129–41. Með sigrinum situr Ísland eitt á toppi A-riðils með fullt hús stiga eftir þrjá leiki, en Thelma Dís Ágústsdóttir fór hamförum í leiknum og sló landsliðsmet með því að skora þrettán þriggja stiga körfur.
Rætt var við Pekka Salminen, þjálfara íslenska liðsins, strax að leik loknum en viðtalið við hann má sjá í spilaranum hér að neðan.




