Tindastóll heldur sigurgöngu sinni áfram í Evrópukeppninni ENBL eftir nauman tveggja stiga útisigur gegn króatíska liðinu Dubrava í Zagreb í kvöld, 73–71.
Sigurinn er sérstaklega sterkur í ljósi þess að Skagfirðingar riftu samningi sínum við bandaríska leikmanninn Ade Murkey í gær, rétt fyrir leikinn, en breytingarnar á leikmannahópnum komu ekki að sök þegar á hólminn var komið.
Jafnræði var á með liðunum allan leikinn. Gestirnir úr Skagafirði leiddu með einu stigi í hálfleik, 38–37, en heimamenn í Dubrava sneru taflinu við í þriðja leikhluta og voru tveimur stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 53–51. Tindastóll sýndi hins vegar mikinn styrk á lokakaflanum, vann fjórða leikhluta með fjórum stigum og tryggði sér sigurinn.
Nemanja Djurisic fór fyrir sóknarleik Tindastóls með 19 stig og 4 fráköst, Taiwo Badmus skoraði 17 stig og tók 5 fráköst og Júlíus Orri Ágústsson bætti við 14 stigum, 4 fráköstum og 6 stoðsendingum.
Með sigrinum hefur Tindastóll unnið alla fimm leiki sína í A-riðli ENBL – þar af fjóra á útivelli – og situr á toppi riðilsins með fullt hús stiga.




