HomeFréttirSviss vann nauman sigur á Írlandi – Ísland einar á toppi A-riðils

Sviss vann nauman sigur á Írlandi – Ísland einar á toppi A-riðils

Sviss lagði Írland að velli í spennandi leik í A-riðli undankeppni EM 2029 í Fribourg í kvöld, 79–77.

Svissneska liðið leiddi með þrettán stigum fyrir lokaleikhlutann, 63–50, en Írar gerðu harða atlögu á lokasprettinum og unnu fjórða leikhluta 27–16 áður en tíminn rann út. Marta Vincenzi var stigahæst í liði Sviss með 19 stig en Sarah Hickey fór fyrir Írum með 29 stig.

Úrslit kvöldsins þýða að Ísland situr eitt á toppi A-riðils með fullt hús stiga (3–0) að loknum fyrsta landsleikjaglugganum, á undan Sviss (2–1), Írlandi (1–2) og Aserbaídsjan (0–3).

Fréttir
- Auglýsing -