Mikið gekk á í lok þriðja leikhluta í leik Selfoss og Njarðvíkur b í Bæjarins Beztu deild kvenna í kvöld þegar Kennedi Nickelle Watkins, leikmaður Selfoss, var rekin úr húsi á meðan Aníta Rut Helgadóttir, leikmaður Njarðvíkur b, slapp með óíþróttamannslega villu.
Atvikið átti sér stað eftir að þær Kennedi og Aníta Rut lentu saman í baráttu um boltann og féllu báðar í gólfið. Þegar þær voru að standa upp átti Aníta Rut upptökin að frekari átökum og sló fyrst í andlit Kennedi, sem brást við með því að slá til baka. Dómarar leiksins tóku þá ákvörðun að vísa Kennedi alfarið úr húsi fyrir sín viðbrögð en dæmdu aðeins óíþróttamannslega villu á Anítu Rut, sem hefði getað fengið sömu refsingu og farið einnig út úr húsi fyrir að hefja átökin.
Kennedi hafði átt frábæran leik fyrir Selfoss fram að atvikinu og var komin með 27 stig, 6 fráköst og 3 stoðsendingar á rúmum 27 mínútum þegar henni var vísað af velli. Mögulega eiga þær báðar yfir höfði sér leikbönn í kjölfar atviksins, en aga- og úrskurðarnefnd KKÍ tekur málið væntanlega fyrir á næstu dögum.




