HomeFréttirSést ekki að þær hafi ekki verið að spila á þessu leveli...

Sést ekki að þær hafi ekki verið að spila á þessu leveli áður

Kvennalandslið Íslands heldur áfram vegferð sinni í undankeppni EuroBasket á morgun, laugardag, þegar liðið fær Sviss í heimsókn í öðrum leik sínum í þessum þriggja leikja glugga.

Íslenska liðið kom heim með sterkan sigur frá Dyflinni gegn Írlandi í farteskinu fyrr í vikunni og lýkur svo glugganum á heimaleik gegn Aserbaídsjan eftir helgina.

Viðtal við Söru Rún Hinriksdóttur af blaðamannafundi liðsins í dag má sjá í spilaranum hér að neðan.

Fréttir
- Auglýsing -