HomeFréttir„Stór dagur fyrir landslið og afreksstarf körfuboltans“ – Fyrsta skóflustunga Þjóðarhallar tekin...

„Stór dagur fyrir landslið og afreksstarf körfuboltans“ – Fyrsta skóflustunga Þjóðarhallar tekin í dag

Nýr kafli í sögu íslensks körfubolta hefst í dag, fimmtudaginn 12. nóvember, þegar fyrsta skóflustungan verður tekin að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal. Með því hillir loks undir nýjan og fullkominn heimavöll fyrir íslensku körfuboltalandsliðin, sem í áraraðir hafa þurft að leika heimaleiki sína í Laugardalshöllinni frá 1965 á undanþágum frá Alþjóðakörfuknattleikssambandinu (FIBA). Ungt afreksíþróttafólk úr landsliðum og félögum í Laugardal tekur skóflustunguna að loknum ávörpum fulltrúa ríkis, borgar og íþróttahreyfingarinnar í athöfn klukkan 13:00.

Hannes S. Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands (KKÍ), segir tímamótin hafa gríðarlega þýðingu fyrir framtíð körfuboltans á Íslandi og fagnar því að verkefnið sé orðið að veruleika. „Þetta hefur mikla þýðingu og er stór dagur fyrir landslið og afreksstarf körfuboltans og fleiri íþróttagreina, þar sem þetta er Þjóðarhöll okkar allra sem koma að innanhússíþróttagreinum. Einnig er þetta stór dagur fyrir Ármann, en þetta mun stórbæta aðstöðu þeirra og annarra sem í Laugardalnum og nágrenni búa,“ segir Hannes.

Að sögn Hannesar hefur KKÍ tekið virkan þátt í undirbúningnum í allmörg ár, allt frá því frumvinna hófst fyrir fjórum til fimm árum undir forystu Ásmundar Einars Daðasonar, þáverandi íþróttamálaráðherra. Eftir að stjórn Þjóðarhallar tók við keflinu hafi verið unnið út frá hugmyndum íþróttahreyfingarinnar og undanfarna mánuði hafi sambandið átt gott samstarf við þá Helga og Hrannar, starfsmenn félagsins. „Það hefur verið hlustað á okkur og við erum ennþá að ræða nokkur atriði sem mögulega er hægt að breyta. Heilt yfir hefur samtalið verið gott og því ber að hrósa, sem og núverandi stjórnvöldum hjá ríki og borg fyrir að halda áfram með verkefnið og láta það verða að veruleika,“ bætir hann við.

Nýja höllin, sem rís sunnan við núverandi Laugardalshöll og verður um 17.700 fermetrar með 8.600 sætum, leysir úr brýnni þörf og uppfyllir allar ströngustu keppniskröfur FIBA sem eldri mannvirki réðu ekki við. Hannes bendir á að nýja húsið gjörbreyti allri umgjörð kringum stórleiki í körfubolta, en þar nefnir hann sérstaklega stórbætta aðstöðu fyrir leikmenn, þjálfara, sjúkraþjálfara og dómara, aukið öryggi og öryggissvæði í kringum völlinn, auk mun betri aðstöðu fyrir bæði æfingar og stuðningsfólk.

Þegar kemur að daglegu starfi körfuboltahreyfingarinnar í húsinu er útfærslan enn í mótun, en Hannes gerir ráð fyrir að höllin verði miðdepill landsliðsstarfsins. „Þarna ættu allir landsleikir okkar að fara fram. Við erum loksins að eignast heimili allra landsliða og þarna verða sem flestar landsliðsæfingar yngri og A-landsliðanna okkar,“ segir Hannes. Stefnt er að því að húsið verði tilbúið í janúar 2030 og horfir Hannes bjartsýnn fram á veginn, en hann telur ansi líklegt að fyrsti opinberi körfuboltalandsleikurinn verði flautaður á í nýrri Þjóðarhöll haustið 2030.

Fréttir
- Auglýsing -