HomeFréttirMyndband: Rekinn út eftir að hafa slegið til leikmanns

Myndband: Rekinn út eftir að hafa slegið til leikmanns

Það sauð upp úr í viðureign Houston Rockets og Golden State Warriors í NBA-deildinni í nótt þegar reynsluboltinn Marcus Smart var rekinn í sturtu fyrir grófa og óíþróttamannslega framkomu. Atvikið átti sér stað þegar 21 sekúnda lifði af þriðja leikhluta eftir að Smart og miðherjinn Charles Bassey flæktust saman í baráttu um frákast.

Í kjölfarið hjólaði Smart í Bassey á miðjum vellinum og reyndi að slá til hans með hægri hendi, en Bassey náði sem betur fer að víkja sér undan högginu áður en leikmenn beggja liða skárust í leikinn og skildu þá að. Dómarar leiksins dæmdu svokallaða flagrant 2 villu á Smart sem þýddi sjálfkrafa brottrekstur, en kappinn var reyndar þegar genginn af velli áður en dómurinn var formlega kveðinn upp og skildi við leikinn með sex stig og tvö fráköst á sautján mínútum.

Að leik loknum fór Bassey hörðum orðum um Smart og sakaði hann um að hafa spilað óheiðarlega allt kvöldið, meðal annars með því að grípa í hnéð og hendurnar á honum. Sagði hann höggið hafa verið aumt og lýsti hegðun Smart sem „falskri hörku“ þar sem hann hefði einfaldlega verið að reyna að láta reka sig út úr leiknum frekar en að spila körfubolta. Þá hrósaði Bassey liðsfélögum sínum fyrir að stökkva strax til og standa vörð um sig, en Draymond Green tók í sama streng eftir leik og sagði að ef einhver réðist gegn einum leikmanni Warriors þyrfti sá hinn sami að eiga við allt liðið.

Fréttir
- Auglýsing -