HomeBónus deildinBónus deild karlaBúinn að rifta samningnum

Búinn að rifta samningnum

Bakvörðurinn Ingvi Þór Guðmundsson leikur ekki meira með Ármanni í Bónusdeild karla í vetur eftir að hafa rift samningi sínum við félagið. Samkvæmt heimildum Körfunnar er brottför hans frágengin og taka breytingarnar gildi þegar í stað.  

Þetta er mikið högg fyrir Ármenninga sem eru án stiga á botni deildarinnar eftir fimm fyrstu umferðirnar og mæta Njarðvík á útivelli í kvöld. Ingvi hefur verið í stóru hlutverki hjá liðinu í haust, en hann er þriðji stigahæsti leikmaður þess og í öðru sæti yfir stoðsendingar með 12,0 stig og 4,2 stoðsendingar að meðaltali í leik.  

Ingvi gekk til liðs við félagið í desember á síðasta ári og reyndist þá lykilmaður í að halda liðinu uppi eftir að Ármann hafði tapað fyrstu átta leikjum tímabilsins.

Fréttir
- Auglýsing -