Tveir leikir fóru fram í Bæjarins Beztu deildunum í kvöld.
Í Bæjarins Beztu deild karla nældi Þór Akureyri í afar dýrmætan heimasigur gegn KFG í stórskemmtilegum leik, 106–102. Justin Andrew fór fyrir heimamönnum með 39 stig og 7 stoðsendingar á meðan Jalen Green skilaði 29 stigum og 8 fráköstum. Hjá KFG átti Björn Skúli Birnisson stórleik með 38 stig, 8 fráköst og 7 stoðsendingar, en William Thompson reif niður heil 19 fráköst. Sigurinn er annar sigur Þórsara á leiktíðinni en Garðbæingar mistókst að jafna liðin í 2.–3. sæti deildarinnar.
Í Bæjarins Beztu deild kvenna sótti ungmennalið Hauka sigur gegn ÍR í Breiðholti, 98–85 (skráð 99–85 í leikskýrslu). Inga Lea Ingadóttir átti tröllaleik fyrir Hauka með 35 stig og heil 26 fráköst, en Þura Björg Jónsdóttir bætti við 14 stigum. Hjá ÍR skoraði Janiya Foskey 35 stig og tók 9 fráköst en Stefania Tera Hansen skilaði 16 stigum og 6 stoðsendingum. Með sigrinum jafna Haukar u lið Selfoss og Þórs Akureyri með átta stig í 2.–4. sæti deildarinnar.
Úrslit kvöldsins:
Bæjarins Beztu deild karla
Þór Ak. – KFG 106–102
Bæjarins Beztu deild kvenna
ÍR – Haukar u 85–98




