Tindastóll tekur á móti ÍR í Síkinu á Sauðárkróki á morgun, mánudag, klukkan 19:15 en leikurinn er jafnframt hinn árlegi styrktarleikur fyrir félagið Einstök börn.
Húsið opnar klukkan 18:00 og mæta fulltrúar frá Einstökum börnum á svæðið með söluvarning, þar á meðal bangsa. Áhorfendur eru hvattir til að tryggja sér bangsa en þeim verður kastað inn á völlinn strax þegar Tindastólsmenn setja niður sína fyrstu þriggja stiga körfu í leiknum. Leikmenn liðsins munu svo færa Einstökum börnum á Norðurlandi bangsana í kjölfarið.
Frítt er inn á leikinn fyrir þá gesti sem kaupa bangsa á staðnum en hefðbundin Síkisstemning verður í boði með hamborgurum og Tindastólsvarningi fyrir leik.




