ÍA hefur samið við bandaríska leikmanninn Allen Flanigan um að leika með liðinu það sem eftir lifir tímabils í Bæjarins Beztu deild karla. Skagamenn voru fljótir að bregðast við eftir að félagið rifti samningi við Marcus Tsohonis á dögunum og hafa nú fundið arftaka hans.
Flanigan er öflugur leikmaður, 198 sentimetrar á hæð, sem getur bæði leyst stöðu bakvarðar og framherja og er þekktur fyrir mikinn varnarstyrk. Hann lék á árunum 2019–2023 með Auburn Tigers í sterkustu deild bandaríska háskólakörfuboltans (SEC), þar sem liðið náði efsta sæti á landsvísu á tímabilinu 2021–2022 og varð deildarmeistari í SEC. ÍA bindur miklar vonir við komu Flanigan í baráttunni á toppi deildarinnar í vetur.




